Læknablaðið - 15.03.1998, Page 37
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
215
Njálgssýkingar í leikskólabörnum í
Reykjavík og Kópavogi
Benóný Jónsson, Karl Skírnisson
Jónsson B, Skírnisson K
Pinworm infections in children in playschools in
Iceland
Læknablaðið 1998; 84: 215-8
Objective: The aim of the study was to examine the
prevalence of pinworm (Enlerobius spp.) infections
in children in playschools in the Reykjavfk urban
area, Iceland.
Material and methods: In November and December
1992 a cellulose tape sample was taken from the anal
region of 184 of 526 two to five year old children at
nine playschools in Reykjavík and Kópavogur.
Furthermore, the teachers and parents were ques-
tioned about known pinworm cases in the children in
the previous six months.
Results: Eleven of the 184 children examined (6%)
were infected with pinworms. Infection was mainly
found in children in fifth (13.2%, n=53) and sixth
(7.1%, n=42) year. No infections were found in three
year children (n=44). Only one two year child had
pinworms (2.2%, n= 45). Fourteen (4.1%) of the 342
children not examined in the playschools had a
history of pinworm infection in the previous six
months.
Conclusion: The results indicate that pinworm in-
fections are rare in two and three year children but
every tenth of the four or five year old children had
pinworms. In most cases neither the staff of the play-
schools nor the parents had suspected the infection.
Key words: Enterobius spp., Iceland, pinworm, play-
school.
Correspondence: Karl Skírnisson, Institute for Ex-
perimental Pathology, University of lceland, IS-112
Reykjavík, lceland. E-mail: karlsk@rhi.hi.is
Frá Tilraunastöö Háskóla íslands í meinafræðum. Fyrir-
spurnir og bréfaskipti: Karl Skírnisson, Tilraunastöö Há-
skóla íslands í meinafræöi aö Keldum, 112 Reykjavík.
Tölvupóstur karlsk@rhi.hi.is
Lykilorð: Enterobius spp., njálgur, leikskólabörn.
Ágrip
Tilgangur: Markmið rannsóknarinnar var að
kanna tíðni njálgssýkinga í börnum í nokkrum
leikskólum í Reykjavík og Kópavogi.
Efniviður og aðferðir: I nóvember og des-
ember 1992 var leitað með svonefndri lím-
bandsaðferð að ummerkjum um njálg í 184 af
526 börnum á níu leikskólum í Reykjavík og í
Kópavogi. Leikskólakennarar og foreldrar voru
jafnframt spurðir um njálgssýkingar í börnun-
um undanfarna sex mánuði.
Niðurstöður: Ellefu af þeim 184 börnum
sem voru rannsökuð greindust með njálg (6%).
Sýking greindist aðallega í börnum á fimmta
(13,2%, n=53) og sjötta (7,1%, n=42) ári. Ekk-
ert þriggja ára barn fannst smitað (n=44) og
einungis eitt tveggja ára barn greindist með
njálg (2,2%, n=45). Fjórtán (4,1%) börn af 342
börnum á leikskólunum sem ekki voru rann-
sökuð höfðu sögu um njálgssýkingu undan-
farna sex mánuði.
Umræða: Niðurstöðurnar benda til þess að
njálgssýkingar séu sjaldgæfar í tveggja og
þriggja ára börnum hér á landi. Aftur á móti
virðist sem að minnsta kosti 10. hvert barn sem
komið er á fimmta og sjötta ár sé með njálg.
Foreldrar og starfsfólk leikskólanna voru yfir-
leitt grunlaus um að þessi börn væru smituð.
Inngangur
Njálgur (Enterobius spp.) er þráðormur sem
lifir í mönnum um allan heim. Eins og fram
kemur í greininni hér á undan (1) hafa litlar
sem engar rannsóknir verið gerðar á þessu
sníkjudýri á íslandi. Víða erlendis hafa víðtæk-
ar rannsóknir verið gerðar á njálgi þannig að
ágæt þekking liggur fyrir um líffræði hans, út-
breiðslu og sjúkdómsáhrif (2-10).
í þessari samantekt eru kynntar niðurstöður á