Læknablaðið - 15.03.1998, Blaðsíða 50
228
Umræða og fréttir
Formannsspjall
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
Um forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu
Frá fundi LÍ um stefnumótun sl. vor. Helgi H. Helgason þáverandi for-
maður FUL, Jón Snœdal varaformaður LÍ og Sigurður Ólafsson
meðstjómandi. Ljósm.: - bþ
Á aðalfundi Læknafélags
íslands árið 1995 var samþykkt
ályktun um forgangsröðun í heil-
brigðisþjónustu. Stjórnvöldum
var þá bent á mikilvægi þess að
ekki yrði skorast undan þeirri
ábyrgð sem á þau er lögð, sam-
kvæmt lögum, um að tryggja
skuli þegnunum „fullkomnustu
heilbrigðisþjónustu, sem á hverj-
um tíma eru tök á að veita til
verndar andlegri, líkamlegri og
félagslegri heilbrigði “ .
Á seinni árum hefur orðið ljóst
að með aukinni tækni og breyttri
aldurssamsetningu þjóðarinnar
koma útgjöld til heilbrigðismála
stöðugt til með að aukast. Því er
hugsanlegt að nauðsyn sé á því
að sníða heilbrigðisþjónustunni
ákveðinn stakk. Læknasamtökin
vöktu með ályktun sinni upp
umræðuna um þessi mál hér á
landi.
í kjölfarið skipaði stjórn LÍ
nefnd sem fjalla skildi um for-
gangsröðun í heilbrigðis-
þjónustu. Nefndin skilaði viða-
mikilli skýrslu sumarið 1997
sem kynnt var læknum, heil-
brigðisyfirvöldum og fjölmiðl-
um. I skýrslunni er í fyrsta sinn á
íslandi fjallað skipulega og fag-
lega um þennan málaflokk. Meg-
inniðurstöður nefndar LÍ voru
þær að benda á mikilvægi sið-
ferðilegra gilda við for-
gangsröðun í heilbrigðisþjónustu
en það var einnig skoðun nefnd-
arinnar að komi til þess að þurfi
að forgangsraða beri að for-
gangsraða verkefnum en ekki
sjúklingum, og var bent á ýmis
atriði í því sambandi. Nefndin
lagði meðal annars til að á veg-
um læknasamtakanna yrði sett á
laggirnar sérstakt „fagráð" LI
sem yrði læknum og stjórnvöld-
um til aðstoðar og leiðbeiningar
um þennan málaflokk.
Nefnd um forgangsröðun á
vegum Heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytisins sem skip-
uð var 1996 hefur ekki enn lokið
störfum. Nefndin hefur skilað
bráðabirgðaskýrslu sem er í anda
skýrslu nefndar LÍ en þó með al-
mennari sýn á viðfangsefnið.
Nefnd ráðuneytisins mun vænt-
anlega skila lokaáliti á þessu ári.
Nýlega hefur hæstvirtur heil-
brigðisráðherra skipað 10 manna
nefnd sem er falið það mikil-
væga verkefni að deila út fjár-
munum til að leysa bráðavanda
heilbrigðisþjónustunnar á þessu
og síðasta ári. Auk þessa eru
nefndinni falin allvíðtæk verk-
efni meðal annars að kanna
rekstur sjúkrastofnana, og koma
með og móta tillögur um sam-
ræmdar leiðbeiningar í læknis-
fræði. í nefndinni eiga einungis
tveir læknar sæti.
Það er skýlaus krafa lækna-
samtakanna að fá tækifæri til að
koma mjög náið að þessari vinnu
sem mun hafa stefnumótandi
áhrif á heilbrigðisþjónustu hér á
landi á næstu árum. Lækna-
samtökin vilja tryggja að fagleg
sérþekking og reynsla sem lækn-
ar hafa verði nýtt, þannig að fjár-
magn sé notað á sem arðbærast-
ann hátt og komið verði í veg
fyrir að forgangsraða þurfi í heil-
brigðisþjónustu að nauðsynja-
lausu.
Guðniundur Björnsson
formaður LI
form@icemed.is