Læknablaðið - 15.03.1998, Síða 56
234
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
Fræðslustofnun lækna
Stefán B. Matthíasson formaður stjórnar
Markmiðið að auka símenntun
Stjórn Fræðslustofnunar lækna, frá vinstri: Ari Jóhannesson,
Margrét Oddsdóttir, Stefán B. Matthíasson forniaður, Ludvig
Arni Guðmundsson og Hannes Petersen. Ljósm.: -bþ-
í samræmi við reglugerð um
Fræðslustofnun lækna, sem birt
er hér í blaðinu, hafa stjórnir LI
og LR skipað stofnuninni stjórn.
I henni sitja af hálfu LI Stefán B.
Matthíasson formaður sem jafn-
framt er formaður fræðslunefnd-
ar Iæknafélaganna, Ari Jóhann-
esson og Ludvig Arni Guð-
mundsson. af hálfu LR skipa
stjórnina Hannes Petersen og
Margrét Oddsdóttir. Stjórnin
kom saman til fyrsta fundar þann
9. janúar síðastliðinn.
Fræðslustofnun lækna er
stofnuð með eignum Námssjóðs
lækna sem lagður var formlega
niður á síðasta ári og eignum
sjálfseignarstofnunarinnar Dom-
us Medica, öðrum en hluta stofn-
unarinnar í fasteigninni að
Hlíðasmára 8 (þriðjungi efstu
hæðar), en Domus Medica sjálfs-
eignarstofnun var formlega lögð
niður 1996. Þetta eru þeir fjár-
munir sem stofnunin hefur úr að
spila til fræðslustarfa, styrkveit-
inga og til að standa undir rekstri
Fræðslustofnunar. Samkvæmt
reglugerð stofnunarinnar má
ekki ganga á höfuðstól þess fjár
sem hana myndar, og ber stjórn
að gæta þess.
Stefán B. Matthíasson sagði
fyrsta fund stjórnar hafa farið í
það að kynna sér reglugerð
Fræðslustofnunar sem samþykkt
var á aðalfundi LI í september
síðastliðnum.
Stefán sagði tilurð Fræðslu-
stofnunar mjög ánægjulega.
„Fyrir þá sem unnið hafa lengi
að menntunarmálum stéttarinnar
er gríðarlega þýðingarmikið að
loks er komin stofnun sem hægt
er að vísa málum til, auk þess
sem stjórn stofnunarinnar getur
sýnt eigið fruntkvæði og sinnt
verkefnum sem stjórnir félag-
anna kunna að vísa til hennar.
Markmiðið hlýtur að verða það
að auka framboð á símenntun."
Hvernig getur Fræðslustofnun
stuðlað að því?
„Fyrst og fremst með því að
skapa sérgreina- og svæðafélög-
unum betri aðstöðu og þjónustu
við námskeiðahald, fundi eða
þing. Fræðslustofnunin sjálf gæti
skipulagt fræðsluefni að eigin
fruntkvæði, að beiðni stjórnar LI
eða einstaklinga sem koma með
góðar tillögur. Til dæmis fól síð-
asti aðalfundur LÍ stofnuninni að
koma á stjórnunarnámskeiði fyr-
ir lækna og er undirbúningur að
því hafinn. Við erum opin fyrir
öllu og hvetjum alla sem hafa til-
lögur um símenntun að koma
þeim á framfæri við okkur.“
Hvað með styrki til einstak-
linga, verða þeir í boði?
„Starfsreglur þar að lútandi
eru enn ómótaðar, en ég tel þó
ekki útilokað að unnt verði að
veita styrki til ákveðinna verk-
efna sem menn eru að vinna að,
enda gerir reglugerðin ráð fyrir
þeim möguleika.
Heildarráðstöfunarfé stofnun-
arinnar er áætlað þrjár til fjórar
milljónir á ári, það er áætluð
ávöxtun af stofnfénu. Við leggj-
um áherslu á að nýta það fyrir
sem flesta félagsmenn. A fyrsta
stjórnarfundi var ákveðið að leita
til félagsmanna og fá fram vænt-
ingar þeirra til Fræðslustofnunar
og tillögur að starfseminni og
kanna samtímis þátttöku þeirra í
símenntun núna. Væntanlega