Læknablaðið - 15.03.1998, Page 58
236
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
munu niðurstöður þessarar könn-
unar hjálpa til við að móta starf-
ið.“
Með tilkomu Fræðslustofnun-
ar hefur fleira breyst, til dæmis
aðstaða til að halda fundi og ráð-
stefnur og Stefán útskýrir hvern-
ig-
„Fræðslustofnun getur boðið
upp á mjög góða aðstöðu í hús-
næði sína að Hlíðasmára 8.
Skrifstofa læknafélaganna hefur
tekið að sér að halda utan um
rekstur salarins og er hægt að
hafa samband við skrifstofuna
og bóka fundi, einnig er hægt að
leita þar eftir aðstoð Fræðslu-
stofnunar við skipulagningu
funda.“
Það má einnig geta þess hér að
salurinn verður jafnframt til út-
leigu fyrir einkasamkvæmi
lækna gegn vægu gjaldi. Geta fé-
lagsmenn haft samband við
skrifstofu LÍ vegna þess.
Formaður stjórnar Fræðslu-
stofnunar á einnig sæti í fram-
haldsmenntunarráði læknadeild-
ar. Undanfarin ár hefur fræðslu-
nefnd læknafélaganna og fram-
haldsmenntunarráð læknadeildar
staðið að sameiginlegri fræðslu-
viku. Stefán var inntur eftir
hvernig það samstarf hefði geng-
ið.
„í janúar síðastliðnum var
fjórða skiptið sem framhalds-
menntunarráð og læknafélögin
stóðu að sameiginlegri fræðslu-
viku á þennan hátt. Samstarfið
hefur gengið mjög vel og mun
vonandi aukast fremur en hitt.
Þátttaka á fræðsluvikunum hefur
verið góð og sérstaklega er
ánægjuleg síaukin þátttaka sér-
greinafélaga í skipulagningu
fræðsluvikunnar. Öllum sér-
greinafélögum lækna er sent bréf
í maí/júní og þeim boðin sam-
vinna við skipulagningu mál-
þinga á fræðsluvikunni. Enn sem
komið er hefur ekki þurft að tak-
marka þátttöku þeirra, hvað svo
sem verður. Á síðustu fræðslu-
viku voru til dæmis sjö sér-
greinafélög sem tóku þátt í
skipulagningu málþinga. Við
væntum þess fastlega að þessi
starfsemi og önnur er lýtur að
fræðslu og símenntun lækna
muni eflast til muna með til-
komu Fræðslustofnunar lækna.“
-bþ-
Reglugerð fyrir Fræðslustofnun lækna
Samþykkt á aðalfundi LÍ
26. og 27. september 1997 í Borgarnesi
1. grein
Heiti - tilurð - varnarþing
1.1. Fræðslustofnun lækna er
stofnun í eigu Læknafé-
lags íslands og lýtur sér-
stakri stjórn. Stofnfé
Fræðslustofnunar lækna
eru núverandi eignir
Námssjóðs lækna. Til
Fræðslustofnunar lækna
munu einnig renna fjár-
munir Sjálfseignarstofn-
unar Domus Medica, skv.
ákvörðun stjórna Lækna-
félags Islands og Lækna-
félags Reykjavíkur, aðrir
en fasteign, en stofnunin
hefur verið lögð niður.
1.2 Heimili Fræðslustofnunar
lækna er að Hlíðasmára 8
í Kópavogi, á skrifstofu
Læknafélags íslands.
Varnarþing stofnunarinn-
ar er í Kópavogi.
2. grein
Hlutverk
2.1. Hlutverk Fræðslustofnun-
ar lækna er að styrkja við-
haldsmenntun og fræðslu-
starf lækna. Þá hefur
Fræðslustofnun lækna
heimild til þess að styrkja
lækna til ferða á lækna-
fundi og til námsdvala
hvort heldur er innanlands
eða erlendis. Ennfremur
er Fræðslustofnun lækna
heimilt að veita styrki til
ákveðinna rannsóknar-
verkefna lækna.
2.2. Fræðslustofnun lækna sér
unt rekstur fræðslustarf-
semi heildarsamtaka
lækna og sameiginlegra
húsakynna Læknafélags
Islands og Læknafélags
Reykjavíkur, sem eru til
þeirra nota.
3. grein
Stjórn Fræðslustofnunar
lækna
3.1. Stjórn Fræðslustofnunar
lækna skipa fimm menn.
Þrír þeirra skulu tilnefndir
af stjórn Læknafélags Is-
lands og skal einn þeirra
vera formaður Fræðslu-