Læknablaðið - 15.03.1998, Blaðsíða 59
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
237
nefndar læknafélaganna
og jafnframt formaður
stjórnar Fræðslustofnunar
lækna. Stjórn Læknafé-
lags Reykjavíkur skal til-
nefna tvo og skal annar
þeirra eiga sæti í Fræðslu-
nefnd félaganna. Jafn-
margir skulu með sama
hætti skipaðir til vara.
Stjórnin velur sér sjálf
varaformann, ritara og
gjaldkera.
3.2. Stjórnarmenn eru kosnir
til þriggja ára í senn og má
ekki endurkjósa sömu
menn í stjórn stofnunar-
innar nema einu sinni.
3.3. Stjórnarsamþykkt er lög-
leg ef a.m.k. þrír stjórnar-
manna greiða henni at-
kvæði.
3.4. Stjórnarfundir skulu
haldnir svo oft sem þurfa
þykir. Stjórnin skal halda
sérstaka fundargerðabók
og skrá í hana allar sam-
þykktir sínar og gerðir.
3.5. Arsfund Fræðslustofnunar
lækna skal halda fyrir lok
aprílmánaðar ár hvert.
4. grein
Ávöxtun og aðrar tekjur
4.1. Stjórn Fræðslustofnunar
lækna sér unt ávöxtun á fé
hennar og skal það gert á
eftirfarandi hátt:
4.1.1. í ríkisskuldabréfum.
4.1.2. í skuldabréfum sem tryg-
gð eru með ábyrgð Ríkis-
sjóðs eða bankastofnana.
4.1.3. I bönkum og sparisjóðum.
4.1.4. I skuldabréfum fjárfest-
ingastofnana, hlutdeildar-
skírteinum sjóða verð-
bréfafyrirtækja, eða ann-
arra lánastofnana enda
starfi þær samkvæmt sér-
stökum lögum eða séu
undir eftirliti Bankaeftir-
lits Seðlabanka Islands.
4.1.5. í skuldabréfum fyrirtækja
með trausta eiginfjárstöðu
og góða rekstrarafkomu.
4.1.6. 1 lánum til lækna til
skamms tíma gegn trygg-
ingu^em sjóðsstjórn metur
gilda.
4.1.7. 1 lánum til samtaka lækna.
4.1.8. f skráðum hlutabréfum.
4.2. Fræðslustofnun lækna er
heimilt að afla tekna með
leigu á húsnæði, sbr. 2.2.
5. grein
Reikningar og endurskoðun
5.1. Reikningsár Fræðslustofn-
unar lækna er almanaksár-
ið.
5.2. Reikningar Fræðslustofn-
unar lækna skulu endur-
skoðaðir af löggiltum end-
urskoðanda, svo og af fé-
lagskjörnum skoðunar-
manni Læknafélags ís-
lands, og lagðir fram á að-
alfundi félagsins.
6. grein
Stvrkveitingar
6.1. Stjórn stofnunarinnar út-
hlutar styrkjum í samræmi
við ákvæði 2. greinar.
6.2. Styrkir hvers árs mega
ekki skerða upphaflegt
stofnfé, framreiknað skv.
vísitölu neysluverðs.
6.3. Umsóknir um styrki skulu
berast stjórn Fræðslustofn-
unar fyrir 1. febrúar ár
hvert. Úthlutun skal kynnt
á ársfundi stofnunarinnar.
6.4. Stjórn Fræðslustofnunar
lækna er heimilt að semja
við Læknafélag íslands
um að annast almenna af-
greiðslu fyrir stofnunina.
7. grein
Gildistaka reglugerðar
Reglugerð þessi öðlast gildi
þegar hún hefur verið samþykkt
af aðalfundi Læknafélags Is-
lands. Jafnframt fellur úr gildi
reglugerð fyrir Námssjóð lækna.
8. grein
Breytingar á reglugerð
Breytingar á reglugerð þessari
skulu samþykktar af stjórnum
Læknafélags íslands og Lækna-
félags Reykjavíkur.
9. grein
Fræðslustofnun lækna lögð
niður
Verði Fræðslustofnun lækna
lögð niður falla allar eignir henn-
ar undir Læknafélag íslands.
Hryggvandamál
Leiðrétting
Vegna mistaka var leiðbeiníngum um greiningu
og meðferð hryggvandamála með taugarótarein-
kennum sem birtust í síðasta hefti Læknablaðsins,
sérstaklega beint til heimilis- og heilsugæslulækna.
Hið rétta er að tilmæli þessi eru til allra lækna.
Er beðist velvirðingar á þessum mistökum.
Landlæknir