Læknablaðið - 15.03.1998, Page 74
250
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
að skilja hvað það er sem hvetur
landlækni til að kalla saman sam-
ráðsnefnd til að fjalla um ofan-
greindar verklagsreglur. Hvernig
niundu taugalæknar eða gigtar-
læknar taka því ef margnefndur
samráðshópur landlæknis birti
sérstakar verklagsreglur um
hvernig þeir eigi að bera sig að
við bakvandamál eða önnur, þar
sem sérstaklega væri tiltekið að
verklagsreglunum væri beint til
þeirra en ekki annarra lækna,
sem þó sinntu svipuðum eða
sömu vandamálum? Eg er
hræddur um að einhverjir yrðu
ekki sérlega ánægðir.
Að lokum vona ég að land-
læknir sé maður til að svara því í
Læknablaðinu hver hafi verið
kveikjan að samningu verklags-
reglnanna og hvers vegna þær
eru birtar á þann hátt, sem gert
var í Læknablaðinu. Heimilis-
læknar eiga heimtingu á skýringu
landlæknis varðandi þetta.
(iunnar Helgi Guðmundsson
heimilislæknir, Heilsugæslustöð-
in Fossvogi.
Vistun sakhæfra geðsjúkra fanga
Athugasemd frá Fangelsismálastofnun ríkisins
Þann 5. janúar 1998 barst
Fangelsismálastofnun dreifibréf
landlæknisembættisins nr.
18/1997. Þar voru settar fram
samstarfsreglur í átta liðum um
vistun sakhæfra geðsjúkra fanga
á geðdeildum sjúkrarhúsa. Regl-
ur þessar voru afrakstur nokk-
urra samráðsfunda sem forsvars-
menn Fangelsismálastofnunar
sátu ásamt landlækni og yfir-
læknum á FSA, Ríkisspítölum
og Sjúkrahúsi Reykjavíkur.
Þann 12. janúar 1998 barst
Fangelsismálastofnun afrit bréfs
sem sent var til landlæknis, und-
irritað af -Halldóri Kolbeinssyni
yfirlækni og Tómasi Zoéga yfir-
lækni.
í síðarnefnda bréfinu hafa yf-
irlæknarnir einhliða bæði breytt
reglunum nokkuð og strikað
sumar þeirra út. Þar með talin er
sú regla að leyfi sjúklings/fanga
án fylgdar komi ekki til greina.
Að marggefnu tilefni vill Fang-
elsismálastofnun árétta að hér er
um grundvallarreglu að ræða og
að breytingar þessar eru gerðar
án nokkurs samráðs við Fangels-
ismálastofnun og er ekki unnt að
fallast á þær.
Er þess óskað að bréf þetta
birtist þeim er fengu dreifibréf
landlæknis og bréf yfirlæknanna.
Bréf Fangelsismálastofnunar
ríkisins er birt hér þar sem bæði
ofangreind bréf birtust í Lækna-
blaðinu; dreifibréf landlæknis-
embættisins nr. 18/1997 (Lækna-
blaðið 1998; 84; 64) og svar
Halldórs Kolbeinssonar og
Tómasar Zoega (Læknablaðið
1998; 84: 155).
Ritstj.