Læknablaðið - 15.03.1998, Blaðsíða 78
252
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
Hluti þátttakanda á XII. þingi Félags (slenskra lyflœkna sem haldið var á Sauðárkráki 7.-9. júní 1996
XIII. þing Félags íslenskra lyflækna
á Akureyri 12.-14. júní 1998
Skilafrestur ágripa er 15. apríl
Þing Félags íslenskra lyflækna, hiö XIII. í röðinni, veröur haldiö á Akureyri dagana
12.-14. júní næstkomandi. Þingstaður er Verkmenntaskólinn á Akureyri og stend-
ur þingiö frá hádegi á föstudegi til síödegis á sunnudegi.
Á þinginu veröur aö venju frjáls erindaflutningur og kynning á veggspjöldum auk
þess sem aö minnsta kosti tveimur gestafyrirlesurum verður boöiö erlendis frá.
Viö erindaflutning veröur unnt aö nota glærur og slædur. Semja þarf sérstaklega
um annan mögulegan tækjabúnað.
Frágangur ágripa
Ágrip erinda og veggspjalda munu birtast í Fylgiriti Læknablaösins sem kemur út
í byrjun júní. Skilafrestur ágripa er 15. apríl næstkomandi.
* Öll ágrip skulu send meö tölvupósti, sem viöhengi, til Birnu Þórðardóttur Lækna-
blaöinu, Fllíöasmára 8, Kópavogi, netfang birna@icemed.is
* Ágrip sem ekki er unnt aö senda rafrænt skulu send á disklingi ásamt útprenti.
Taka þarf fram vinnsluumhverfi.
* Flámarkslengd ágripa er 2000 letureiningar (characters).
* Semja þarf sérstaklega um birtingu mynda og grafa.
* Eftirtalin atriði komi fram í þeirri röö sem hér segir: titill ágrips, nöfn og vinnu-
staöir höfunda, inngangur, efniviöur og aöferöir, niðurstöður, ályktanir.
* Nafn flytjanda skal feitletrað.
Verölaun
Viö lok þingsins veröa veitt tvenn verölaun. Annars vegar úr Vísindasjóöi lyflækn-
ingadeildar Landspítalans, kr. 50.000 fyrir framúrskarandi rannsókn og erindi
ungs læknis og hins vegar veitir Félag íslenskra lyflækna kr. 25.000 fyrir besta
framlag stúdents.
Þátttökugjald
Almennt gjald kr. 8.500, kr. 6.000 fyrir unga lækna og frítt fyrir stúdenta.
Pantanir
Birna Þórðardóttir Læknablaöinu skráir þátttakenda og tekur viö pöntun um gist-
ingu frá og með 1. apríl, sími: 564 4104, bréfsími: 564 4106, netfang:
birna@icemed.is
Flugferðir
Flugferðir í tengslum viö þingiö veröa auglýstar síöar.