Læknablaðið - 15.07.1999, Síða 44
632
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
Kandídatamóttaka
Föstudaginn 18. júní buðu
Læknafélag íslands og lækna-
deild Háskóla íslands verð-
andi kandídötum til móttöku í
húsnæði LÍ að Hlíðasmára 8
Kópavogi, en útskrift úr
læknadeild fór fram laugar-
daginn 19. júní.
Arnór Víkingsson ritari LÍ
bauð kandídata og aðra gesti
velkomna fyrir hönd gestgjafa
og afhenti kandídötum lög LI,
siðareglur lækna og kjarasamn-
inga sjúkrahús- og heilsu-
gæslulækna.
Hollvinasamtök lækna-
deildar HÍ veittu viðurkenn-
ingu fyrir bestan árangur á
kandídatsprófi, hlaut þau
Halldór Skúlason. Viðurkenn-
ingin var þýðingar Helga Hálf-
dánarsonar á verkum Willi-
ams Shakespeares og afhenti
Arni Björnsson þau fyrir hönd
Hollvinasamtakanna.
Samkvæmt venju undirrit-
uðu kandídatar Heitorð lækna
í bók þeirri er það er skráð í og
læknakandídatar hafa ritað
nöfn sín í allt frá árinu 1932.
Heitorð lækna
Ég sem rita nafn mitt hér
undir, lofa því og legg við
drengskap minn
að beita kunnáttu minni með
fullri alúð og samvizku-
semi,
að láta mér ávallt annt um
sjúklinga mína án mann-
greinarálits,
að gera mér far um að auka
kunnáttu mína í lækna-
fræðum,
að kynna mér og halda vand-
lega öll lög og fyrirmæli
er lúta að störfum lækna.
Kandídatahópurinn sem mœtti til móttöku LÍ og
lœknadeildar HI.
Jóhannes Heimir Jónsson undirritar Heitorð lœkna.
Gestgjafar og gestir. Frá vinstri: Reynir Tómas
Geirsson varaforseti lœknadeildar, Sveinn Magn-
ússon skrifstofustjóri Heilbrigðisráðuneytinu,
Matthías Halldórsson aðstoðarlandlœknir, Jóhanti
Ágúst Sigurðsson forseti lœknadeildar, Margrét
Georgsdóttir ritari Lœknafélags Reykjavíkur, Arn-
ór Víkingsson ritari Lœknafélags Islands og Sig-
urður Björnsson meðstjórnandi LI.