Læknablaðið - 15.07.1999, Síða 49
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
633
Fréttatilkynning
Stofnun félags kvenna í læknastétt
Stofnfundur félags kvenna í
læknastétt var haldinn þann
26. maí 1999 í húsi Læknafé-
lags íslands að Hlíðasmára 8 í
Kópavogi. Fundarstjóri var
Anna Geirsdóttir og fundarrit-
ari Ingibjörg Hinriksdóttir.
í undirbúningsnefnd fyrir
þennan stofnfund voru: Anna
Geirsdóttir heimilislæknir
Heilsugæslustöðinni í Grafar-
vogi, Guðrún Gunnarsdóttir
heimilislæknir Heilsugæslu-
stöðinni Sólvangi, Hafnar-
firði, Ingibjörg Hinriksdóttir
háls-, nef- og eyrnalæknir
Sjúkrahúsi Reykjavíkur og
Ólöf Sigurðardóttir meinefna-
fræðingur rannsóknadeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur.
Fundarboð var sent til allra
kvenna í læknastétt sem bú-
settar eru á Islandi. Alls mættu
49 konur og eftir inngang Ól-
afar Sigurðardóttur var hlust-
að á fyrirlestur dr. Þorgerðar
Einarsdóttur félagsfræðings
sem bar heitið: Karlar eru þar
sem virðingin er mest; um sér-
greinaval lœkna. Þorgerður
varði doktorsritgerð sína frá
Gautaborgarháskóla árið 1997
og ber hún heitið: Lakaryrket i
förandring. En studie av den
medicinska professionens het-
erogenisering och könsdiffer-
entiering. Fyrirlesturinn var
mjög fræðandi og spunnust
fjörugar umræður á eftir.
Hópnum var síðan skipt upp í
minni hópa og var rætt um
markmið og stefnu væntan-
legs félags. Á fundinum var
einróma samþykkt að stofna
félag eða samtök kvenna í
læknastétt á íslandi. Félagið
mun síðan verða hluti af
Norður-Evrópu félaginu (Sví-
þjóð, Noregur, Finnland, Dan-
mörk, Bretland og írland),
sem er eitt af átta svæðafélög-
um innan Alþjóðafélags kvenna
í læknastétt (Medical Wo-
men's Intemational Associa-
tion, MWIA) sem var stofnað
1919.
Kosin stjórn
Á fundinum var félaginu
kjörin stjóm og skipa hana
Ólöf Sigurðardóttir formaður,
Margrét Snorradóttir gjald-
keri, meinafræðingur Krabba-
meinsfélagi íslands, Ragn-
heiður I. Bjamadóttir ritari,
fæðinga- og kvensjúkdóma-
læknir Landspítalanum, Anna
Geirsdóttir meðstjómandi og
Halldóra Jónsdóttir fulltrúi
unglækna, deildarlæknir á
geðdeild Landspítalans.
Næsti fundur verður hald-
inn í haust og munu þá allar
konur í stéttinni búsettar á ís-
landi fá heimsent fundarboð.
Öllum konum í læknastétt, út-
skrifaðar 1999 og fyrr, er boð-
ið að gerast stofnfélagar fram
á haust. Hafið samband við
Ólöfu Sigurðardóttur olsi@
shr.is
Þess má geta að félög
kvenna í læknastétt em starf-
rækt í flesum löndum Evrópu
og í Bandaríkjunum og má þar
benda á vefsíðu sænska fé-
lagsins Kvinnliga lakares för-
aning www.klf.se en þaðan er
hægt að komast beint inn á
heimasíðu alþjóðahreyfingar
kvenna í læknastétt.