Læknablaðið - 15.07.1999, Blaðsíða 52
636
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
Rannsóknastofnun Landspítalans
tekur til starfa 1. júlí
-Tilgangurinn að auka sjálfstæði rannsóknarstofanna
og auka hagkvæmni í rekstri þeirra,
segir Þorvaldur Veigar Guðmundsson stjórnarformaður
Þann 1. júlí tók Rann-
sóknarstofnun Landspítal-
ans til starfa. Undir þessu
nafni hafa verið sameinaðar
rannsóknarstofur í blóð-
fræði, meinefnafræði,
ónæmisfræði, sýklafræði og
veirufræði. Blóðbankinn og
rannsóknarstofa í vefja-
meinafræði standa utan
þessa nýja fyrirtækis en að
sögn Þorvaldar Veigars Guð-
mundssonar lækningafor-
stjóra gæti svo farið að þess-
ar stofnanir renni inn í það
seinna meir.
Búið er að ráða forstöðu-
mann þessarar nýju stofnunar
en hann verður Ólafur Stein-
grímsson yfirlæknir á rann-
sóknarstofu í sýklafræði. Með
honum starfar rekstrarstjórn
sem skipuð er yfírlæknum
hinna rannsóknarstofanna að
viðbættum rekstrarstjóra sem
ekki er læknir. Ráðið hefur
verið í þá stöðu og varð fyrir
valinu Gunnar Sveinsson sem
lengi hefur starfað hjá Bif-
reiðastöð íslands.
Stjóm hinnar nýju stofnun-
ar er skipuð af framkvæmda-
stjórn Ríkisspítala og eiga
sæti í henni þrír læknar spítal-
ans: Þórður Harðarson pró-
fessor í lyflækningum, Kristj-
án Sigurðsson sviðsstjóri
kvenlækningasviðs og Þor-
valdur Veigar sem er formaður
stjórnarinnar. Læknablaðið
tók stjórnarformanninn tali og
Þorvaldur Veigar Guðmundsson lœkningaforsljóri og stjórnarfor-
maður Rannsóknarstofnunar Landspítalans.
bað hann fyrst að lýsa því sem
verið er að gera.
Arðurinn rennur til
spítalans
„Það sem verið er að gera er
að við sameinum rekstur
þeirra rannsóknarstofa sem
fallið hafa undir rannsóknar-
svið Landspítalans. Þessi nýja
stofnun fær meira fjárhags- og
rekstrarlegt sjálfstæði en
nokkur deild spítalans. Eig-
andinn verður eftir sem áður
Landspítalinn og fram-
kvæmdastjórn hans skipar
stjómina. Stofnunin tekur til
starfa 1. júlí en fyrsta hálfa ár-
ið verður tilraunaskeið sem
notað verður til að sníða af
vankanta og takast á við
ófyrirsjáanleg vandamál. En
um áramótin á reksturinn að
verða kominn í fullan gang
samkvæmt nýju skipulagi.“
- Hvaða breytingar verða á
rekstrinum?
„Stærsta breytingin er sú að
rannsóknarstofumar hætta á
föstum fjárveitingum. Hug-
myndin er sú að því fé sem nú
er varið til rannsókna verði
deilt út á einstakar deildir sem
síðan kaupa þjónustu af stofn-
uninni og greiða fyrir hana
samkvæmt gjaldskrá. Stofn-
unin sjálf mun svo kaupa allt
sem hún þarf að kaupa af
Landspítalanum, þar með er
talin öll bókhalds-, tölvu- og
stjórnunarþjónusta. Tæki og
búnaður verður heimanmund-
ur spítalans til stofnunarinnar