Læknablaðið : fylgirit


Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1994, Qupperneq 11

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1994, Qupperneq 11
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80 11 námið í læknadeild, var Vilmundur Jónsson, síðar landlæknir (13). Hann rannsakaði sögu og þróun skipunar heilbrigðismála hér á landi og ritaði mik- ið um þessar rannsóknir. Auk þeirra rita hans sem þegar hafa birzt, er til í handriti mikið verk um sögu læknakennslunnar fram að stofnun háskól- ans. Mest af því sem hér hefur verið sagt um þennan þátt sögunnar er fengið úr prentuðum ritum Vilmundar. Þó er tilvitnun í erindisbréf Bjarna Pálssonar fengin úr handriti með góðfús- legu leyfi sonar Vilmundar, prófessors Þórhalls Vilmundarsonar. Fyrirkomulag kennslu og prófa breyttist lítið næstu tæplega 60 ár. Þó var embættisprófi skipt í þrjá hluta þegar árið 1922 (14), próf í handlæknis- aðgerð fellt niður árið 1938 (2). í reglugerð frá 1942 (15) var ákveðin kennsla í 13 greinum. Minnstu kröfur um verklegt nám í miðhluta voru þrír mánuðir í handlæknisdeild, þrír mánuðir í lyflæknisdeild, tveir mánuðir í rannsóknarstofu og einn mánuðurí röntgendeild. Þó hélst áfram sú skipan, sem verið hafði síðan 1933 að flestir stúd- entar unnu á Kleppsspítala í miðhluta í stað lyf- læknisdeildar. í síðari hluta voru kröfurnar einn og hálfur mánuður í lyflæknisdeild og einn og hálfur mánuður í handlæknisdeild. Kennurum fjölgaði lítið, en stúdentum mikið og húsnæðis- skortur háði kennslu og rannnsóknum verulega. Árið 1933 þreytti Halldór Hansen fyrstur manna doktorspróf við deildina og fór vörnin fram í neðri deildarsal Alþingis (16). A árinu 1957 voru samþykkt ný háskólalög og árið eftir var staðfest ný reglugerð fyrir Háskóla Islands. Hlutverk Háskóla íslands er skýrgreint sem „vísindaleg rannsóknarstofnun og vísindaleg f' œðslustofnun, er veitir nemendum sínum mennt- untilþess að gegna ýmsum embœttum ogstörfum í þjóðfélaginu og til þess að sinna sjálfstœtt vísinda- legum verkefnum. “ (17). Kennsla til embættis- prófs í læknisfræði er talin í 18 greinum og settar eru fram breyttar kröfur um verklegt nám í sjúkrahúsum, fjórir og hálfur mánuður í miðhluta °g átta mánuðir í síðasta hluta. Prófafyrirkomu- lagi var breytt þannig, að nú skyldi taka upp- hafspróf í efnafræði og almennri líffærafræði og þriðja hluta embættisprófs var skipt í forpróf og lokapróf. Forprófið var í sex sérgreinum sem ekki hafði verið prófað í áður og kennslan í sumurn á tímabili verið innt af hendi í sjálfboðavinnu. Lág- markseinkunn á forprófi var hækkuð og kveðið var á um að hámarksnámstími væri 16 misseri. Kennurum fjölgaði verulega í sjö prófessora og 22 aukakennara (18), en þeir urðu flestir dósentar eða lektorar árið eftir. A árinu 1965 hófst undirbúningur að gagn- gerðri endurskoðun á kennslu og skipulagi lækna- deildarinnar og var fenginn erlendur ráðgjafi, að- alritari Nordisk Federation for Medicinsk Und- ervisning, til að veita aðstoð við að koma vinnunni af stað. Markmiðið með endurskoðun- inni var að reyna að gera starfsemi deildarinnar virkari, koma stúdentum fyrr í tengsl við klínik- ina, samhæfa kennslu í ýmsum greinum, þjappa náminu saman og stytta námstímann, þjálfa stúd- enta í fræðilegum rannsóknum og leggja áhersu á að verið væri að undirbúa kandídatana undir framhaldsnám í hinum ýmsu sérgreinum læknis- fræðinnar. Endurskipulagningin var nauðsynleg vegna mikilla framfara og breytinga í læknisfræði og koma þurfti fyrir kennslu í nýjum greinum, sem læknum er nauðsynlegt að kunna nokkur skil á. Ennfremur þótti nauðsynlegt að reyna að stytta grunnnám í læknisfræði, vegna þess að framhalds- nám hafði lengst svo, að margir læknar voru og eru komnir yfir miðjan fertugsaldur þegar þeir hefja lífsstarf sitt hér á landi. Árangur þessarar endurskoðunar birtist í nýrri reglugerð haustið 1969 (19). I henni voru tekin upp ákvæði um kennslustjóra og kennslunefnd til að sjá um samræmingu og stöðuga endurskoðun kennslufyrirkomulagsins. Kennslutíminn var ákveðinn allt háskólaárið án misseraskiptingar og tekin upp árgangakennsla þannig að námsár urðu samtals sex og próf haldin í lok hvers kennsluárs. Kennslugreinar voru 27 og skyldi tekið próf í öllum. Forpróf skyldu tekin í lok nóvember á fyrsta ári og meðaleinkunn til að standast þau og geta haldið áfram námi var hækkuð. Forsendur þess að hið nýja fyrirkomulag kennslunnar heppnaðist vel var aukinn kennara- fjöldi og að í hverjum árgangi yrði ákveðinn fjöldi stúdenta, þó ekki færri en 24 en helst ekki mikið fleiri. Því miður brustu þessar forsendur. Kenn- arafjöldi jókst að vísu nokkuð, en deildarfundur vorið 1970 felldi tillöguna um að nota heimildina til fjöldatakmörkunar, en samþykkti tillögu um frjálsan aðgang að deildinni með eins atkvæðis meirihluta (20). Úr læknadeild hafa útskrifast samtals 1468 kandídatar frá upphafi, þar af 508 á síðustu 12 árum. Mestur varð fjöldinn, 62, árið 1986. Haust- ið 1946, voru fimm prófessar og sex aukakennarar við deildina, en 144 stúdentar, þar af 37 nýskráðir. Fastir kennarar eru nú 24 prófessorar, 55 dósent- ar og lektorar auk stundakennara. Stúdentafjöld- inn er 361, þar af 166 nýskráðir. Heimild til fjöldatakmörkunar samkvæmt ákvörðun háskólaráðs fékkst inn í reglugerð 1979 (21) og árið 1981 samþykkti háskólaráð að beita þessari heimild (22). Hefur síðan verið miðað við
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.