Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1994, Page 54

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1994, Page 54
54 LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80 „ Vér erum í engum vafa um, að íslenzkt Lœkna- blað hefur mikið og nauðsynlegt verk að vinna og vér berum það traust til íslenzku læknastéttarinnar að hún styðji það, svo það geti orðið oss til gagns og sóma. Það eru héraðslæknar landsins, sem ráða mestu um afdrifþess, en ekki ritstjórnin. “ (3) Að lokum skal þess óskað að Læknablaðið beri gæfu til að sinna fræðilegum þörfum lækna eins og þær eru á hverjum tíma. Þannig verði blaðið ým- ist, boðberi vísinda eða hagnýtra fræða, vettvang- ur höfunda eða viðfangsefni lesenda, æfingavöll- ur eða listasmiðja, en þó alltaf fyrst og fremst málgagn læknanna sjálfra. Starf ritstjórnar felst í því að finna púlsinn og að láta hjartaslög fræð- anna hljóma af fullum krafti og án óhljóða. Þakkir Bókavörðum á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur- eyri og á Landspítala er þakkað fyrir ljúfmann- lega aðstoð við leit að hinu sögulega efni. Heimildir 1. Ólafsson M. Læknablaðsannáll. Læknablaðið 1965; 50: 9- 12. 2. Hannesson G. Læknablaðsmál. Læknablaðið 1915; 1: 10-1. 3. Ritstjórnargrein. Læknablaðið 1915; 1: 1-3. 4. Hannesson G. Verkefni fyrir íslenska lækna. Læknablaðið 1915:1: 25-7. 5. Magnússon J. Ritstjórnargrein. Læknablaðið 1991; 77: 99. 6. Ritstjórnargrein. Málgagn íslenskra lækna. Læknablaðið 1972; 58: 28-9. 7. Læknablaðið 75 ára. Rætt við Örn Bjarnason ritstjóra. Fréttabréf lækna 1989; 7: 2-4. 8. Læknaskrá 1993. Heilbrigðisskýrslur. Fylgirit 1993, nr. 1. Reykjavík: Landlæknisembættið, 1993. 9. Halldórsson S. Athugasemdir við yfirlitsgrein um eyma- bólgu. Fréttabréf lækna 1993; 11:10. 10. Þórðardóttir B, ritstjórnarfulltrúi. Munnlegar upplýsingar í september 1993. 11. Krasnik A. Tímarit um læknavísindi: Hvað er framundan? Þýðing Örn Bjarnason. Læknablaðið 1989; 75: 419-9. 12. Bjarnason Ö. Reglur ritstjórnar um birtingu efnis, um frá- gang handrita, um meðferð og mat á efni og um prófarka- lestur. Læknablaðið 1985; 71: 364-7. 13. Tómasson J. í heimsókn hjá JAMA. Fréttabréf lækna 1983; 1; 7-9. 14. Bjarnason Ö. íðorðasafn lækna, A. Formáli. Orðanefnd læknafélaganna. Reykjavík 1986. 15. Björnsson G. Þetta má ekki svo til ganga. Læknablaðið 1916; 2:174-5. 16. Jónsson V. Thorvaldsen og Oehlenschlæger. Læknablaðið 1955; 39:124-39. 17. Ótilgreindur höfundur. Sendibréf til Læknablaðsins. íð- orðapistill. Fréttabréf lækna 1990; 8: 2. 18. Bjarnason Ö. Er orðasmíð hættuleg? Læknablaðið 1992; Fylgirit 20: 9. 19. Ásmundsson P. Að stýra blaði. Ritstjórnargrein. Lækna- blaðið 1977; 63: 94. Athugasemd Handritið er lagt fram til birtingar með þeim fyrirvara að í munnlegum flutningi voru tekin nokkur hliðarspor og eins var klofað yfir ýmis- legt, sem í hita augnabliksins þótti of líkt því sem fyrri framsögumenn höfðu þegar tjáð. Þá hefur handritið verið lagfært til að færa málfarið nær því sem tíðkast í lesefni.

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.