Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1994, Blaðsíða 62

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1994, Blaðsíða 62
62 LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80 Einar Oddsson Um röðun sjúklinga í forgangshópa Erfiðleikar í íslensku efnahagslífi verða ekki viðfangsefni þessa erindis. í>á þekkið þið eins vel og ég og að auki eru aðrir hæfari að fjalla um þá. Hins vegar ætla ég að reyna að ræða afleiðingar breytinga í efnahagslífi á heilbrigðisþjónustu og sérstaklega hvernig hugsanlega mætti bregðast við þeim. Reyndar erég ekki sérfræðingur á þessu sviði og verða því viðhorf þau, sem hér koma fram að skoðast í ljósi sérfræðiþekkingar í lyflækning- um og meltingarsjúkdómum. Öllum er okkur ljós sá mikli niðurskurður fjár- magns til heilbrigðisþjónustu, sem orðið hefur á seinustu árum og þær afleiðingar, sem hann hefur haft. Oft hafa okkur fundist ráðstafanir, sem gerðar hafa verið til sparnaðar óréttlátar og koma harkalegar niður á sumum greinum þjónustunnar en öðrum. Sparnaður og aðhald er þó ekki sérís- lenskt fyrirbæri, slíkar ráðstafanir eru nú gerðar um allan hinn vestræna heim. Kostnaður við heil- brigðisþjónustu hefur farið úr böndum og aðgerð- ir til að hamla þessari kostnaðaraukningu eru nrjög til umræðu. Breski stærðfræðingurinn Sir Bryan Thwaithes gerði fyrstur grein fyrir því hvernig væntingar til heilbrigðisþjónustu vaxa hratt og fjarlægjast stöð- ugt áætlaðan vöxt, sem þó er oft umfram getu (1). Skýringa á þessum mun er að leita annarsvegar í breyttum efnahagslegum forsendum, en hins- vegar og ekki síður í breyttum kröfum og áhersl- um í heilbrigðisþjónustunni sjálfri. Breytingar á aldurssamsetningu þjóðfélaganna hefur einnig mikil áhrif. Lausna á þessum vanda er oft leitað til annarra landa, sem þó eru lítið eða ekki betur sett. Þá sjá menn önnur kerfi oft í hyllingum, hvort sem um er að ræða einkarekin kerfi eða kerfi, sem rekin eru af hinu opinbera. Eg tel hins vegar, að lausnir á vanda hcilbrigðisþjónustu verði að finna í hverju landi fyrir sig, þó að oft megi finna hliðstæður annarstaðar til viðmiðunar. Þar sem þrýstingur á heilbrigðiskerfið er, að minnsta kosti enn, fyrst og fremst vegna fjár- skorts, gætum við valið um þrjá kosti: 1. Auka fjárveitingar til heilbrigðisþjónustu. 2. Auka sparnað og ráðdeild í heilbrigðisþjón- ustu. 3. Velja breytta forgangsröðun í heilbrigðis- þjónustu. Það verður að telja í hæsta máta ólíklegt, að pólitískur vilji sé fyrir því, að auka framlög til heilbrigðisþjónustu, að minnsta kosti við núver- andi efnahagsaðstæður. Reyndar hefur ríkis- stjórnin boðað frekari niðurskurð fjárframlaga. Þrátt fyrir boðaðar aðgerðir í heilbrigðiskerfinu, sem væntanlega leiða til einhverrar skerðingar á þjónustu, hefur lítil umræða verið í þjóðfélaginu og óskir fólks hafa ekki komið fram. Æskilegt er að umræðu um heilbrigðismál verði komið af stað í þjóðfélaginu, til að kanna vilja og óskir fólks til heilbrigðisþjónustu, því að grundvöllur réttrar forgangsröðunar er að vita hvernig sjúklingar og samfélagið metur bætta heilsu. Margar þeirra aðgerða, sem gripið hefur verið til, eins og að auka kostnaðarhlutdeild sjúklinga, verða aðeins til að færa kostnað milli greiðsluað- ila, en breyta engu um kostnaðinn í kerfinu sem slíku. Lausnir af þessu tagi geta aðeins frestað óhjákvæmilegum breytingum á kerfinu. Hversu langt má komast með hagræðingu er óljóst, það verður þó að telja ólíklegt að hægt sé að ná nægilegum sparnaði á þann hátt til að full- nægja óskum stjórnvalda um mikið meiri niður- skurð útgjalda en orðið er. Að sjálfsögðu ber að hagræða eins og kostur er og sjálfsagt að slíkar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.