Læknablaðið : fylgirit


Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1994, Qupperneq 63

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1994, Qupperneq 63
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80 63 aðgerðir hafi forgang. Endurskoðun á einstökum þáttum heilbrigðisþjónustunnar þarf einnig að vera stöðugt í gangi, til að tryggja ráðdeild og komast hjá sóun. Ef ekki er hægt að ná settum markmiðum með hagræðingu, verður að grípa til annarra ráðstaf- ana. Af þessum sökum sýnist mér líklegt, að veru- legar breytingar á heilbrigðiskerfinu séu fyrirsjá- anlegar í nánustu framtíð. Hverjar þær breytingar verða er enn óvíst, en forgangsröðun sjúkdóma er einn þeirra kosta, sem rétt er að athuga nánar. Við skulum líta nánar á þennan valkost, en við slíka skoðun hljóta að vakna margar spurningar, eins og þessar: — Hvað er forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu? — Hver eða hverjir eiga að taka ákvarðanir um forgangsröðun? — Er forgangsröðun nýjung í heilbrigðisþjón- ustu? — Hvaða skilmerki er helst hægt að nota? — Hvernig gæti slík forgangsröðun orðið? — Hvert er hlutverk lækna í forgangsröðun — Hvað með nýjungar í rannsóknum og með- ferð? — Hvernig er hægt að tryggja réttláta skiptingu heilbrigðisþjónustu ? Hvað er forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu? Ég nota hér forgangsröðun í sömu merkingu og enska hugtakið resource allocation (útdeiling úr- ræða), það er að segja að valkostum er raðað eftir mikilvægi. Þetta er til aðgreiningar frá skömmt- un, rationing, sem frernur tekur til ákvarðanna sem teknar eru um einstaka sjúklinga. í hvert sinn sem verkefni fær forgang, minnka likurnar á því, að eitthvað verði úr verkefnum, sem síðar koma til álita eða þá að þau útilokast með öllu. Um forgangsröðun hefur Povl Riis skrifaö leiðara í Læknablaðið, októberhefti 1991, en þessi leiðari er öllum holl lesning. Þar segir hann um forgangs- röðun sjúkdóma: „ Forgangsröðunin œtti, þegar best verður á kos- ið, að taka mið afþví, að allir sjúklingar séu jafnir, að því er varðar borgaraleg réttindi, en jafnframt, að allir sjúkdómar séu jafnréttháir“. Síðan bendir hann á ýmsa þætti, sem hafi áhrif á ákvarðanir um forgangsröðunina í dag, eins og þrýstihópa, mis- munandi aldur sjúklinga og mismunandi vægi líf- færakerfa. Þar sem segja megi að sjúkdómar í sumum líffærakerfum þyki fínni en í öðrum og sjúklingar hafi mismikinn forgang, þó að ekki hafi verið skilgreind nein ákveðin röðun í kerfinu. Þessi atriði renna stoðum undir þá skoðun, að Einar Oddsson á fundinum um forgangsröðun í heilbrigðisþjónustunni. þörf sé markvissari stefnu um forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu. Hver á að taka ákvörðun um forgangsröðun ? Ákvarðanir um að taka upp ákveðna forgangs- röðun sjúkdóma í heilbrigðiskerfinu verður að koma frá stjórnvöldum, slíkar breytingar verða þó að gerast í samvinnu og samráði við lækna og annað starfsfólk í heilbrigðisþjónustu. En almenn umræða í þjóðfélaginu og samráð við almenning er ekki síður mikilvæg. Segja má, að framtíðar- stefna í heilbrigðismálum á íslandi hafi verið mörkuð með íslenskri heilbrigðisáætlun sem sam- þykkt var á Alþingi 19. mars 1991, en hún hefur ekki að fullu komist til framkvæmda. Er forgangsröðun nýjung í heilbrigðisþjónustu ? Röðun verkefna eftir mikilvægi hefur alltaf verið gerð í heilbrigðiskerfinu, sú röðun hefur þó oftast fremur átt við um aðstöðu, eins og legu- rými, rannsóknar eða meðferðarrými. Röðun sjúklinga í hópa með mismikinn forgang hefur lítið tíðkast í íslenska heilbrigðiskerfinu, þó alltaf hafi verið valið og hafnað. Verður að telja að
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.