Kjarninn - 29.08.2013, Page 13

Kjarninn - 29.08.2013, Page 13
Búið Að lokA SkRifStofu Já ÍSlAnD tveimur undirskriftasöfnunum sem snúa að viðræðum við Evrópu- sambandið (EsB) hefur verið komið á fót á þessu ári. Aðildarsinnar settu af stað herferð sem köllum var „Klárum dæmið“ og átti að þrýsta á að viðræður við EsB yrðu kláraðar. rúm- lega 16 þúsund manns höfðu skrifað undir þann lista í byrjun þessarar viku. Andstæðingar aðildar settu líka í gang lista gegn því að ljúka viðræðunum. tæplega 13 þúsund manns hafa ritað nafn sitt á hann. Baráttan með og á móti aðild að Evrópusambandinu hefur ekki einungis farið fram með undirskrifta- söfnunum. sterk samtök voru líka sett upp á hvorum enda deilunnar sem hafa barist hart fyrir sínum málstað. skrifstofu samtaka að- ildarsinna, já Ísland, hefur nú verið lokað vegna skorts á fjármagni til að reka hana og starfsfólki hennar verið sagt upp. Heimssýn, hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, sem barist hefur gegn aðild, er hins vegar enn starfandi af fullum krafti og rekur harðan áróður fyrir því að umsóknarferli verði hætt algjörlega. leiddi hún til þess að þáverandi ritstjórar DV, Jónas Krist- jánsson og Mikael Torfason, sögðu af sér. Hrunið hrinti af stað byltingu Eftir hrunið sem varð haustið 2008, búsáhaldabyltinguna sem fylgdi og háværar kröfur um breytta stjórnarhætti hafa undirskriftasafnanir notið aukinna vinsælda sem tól til að þrýsta á um breytingar. Strax í október 2008 var sett á fót söfnun með kröfu um þingkosningar. Á nokkurra mánaða tímabili skrifuðu á sjöunda þúsund manns undir hana. Kosningar fóru síðan fram vorið 2009 og skömmu síðar var tilkynnt að Ísland hefði náð samkomulagi í hinni svokölluðu Icesave-deilu. Ríkisábyrgð á lögum þess efnis var samþykkt um haustið og Ólafur Ragnar skrifaði undir þau í byrjun september. Þá höfðu um tíu þúsund manns þegar skrifað undir áskorun til hans um að gera það ekki. Málið hlaut þó ekki brautargengi og samkomulag, sem í daglegu tali er oftast kallað Icesave II, var samþykkt á Alþingi í lok árs 2009. Hinn 5. janúar 2010 beitti Ólafur Ragnar málskotsréttinum í annað sinn og synj- aði lögunum staðfestingar. Í rökstuðningi fyrir þeim 4/09 kjarninn stjórnmál smelltu til að lesa yfirlýsingu ólafs ragnars þegar hann neitaði að skrifa undir Icesave II

x

Kjarninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.