Kjarninn - 29.08.2013, Page 18

Kjarninn - 29.08.2013, Page 18
um 31 þúsund undirskriftir. Önnur var áskorun á for- seta Íslands um að synja lögum um breytingar á veiðileyfa- gjöldum um undirskrift. Í júlí 2013 voru forsetanum afhentar 34.882 undirskriftir vegna þessa. Það kom þó ekki í veg fyrir að hann skrifaði undir lögin. Samstundis var sett af stað ný undirskrifta söfnun, sem bar nafnið „Áskorun til forseta Íslands um afsögn“ (1.668). Þriðja var undirskriftasöfnun sem fram fer á heima- síðunni www.lending.is og snýst um að halda flugvellinum í Vatnsmýri. Á mánudag höfðu 53.388 manns skrifað undir hana. ákvarðanir teknar með undirskriftalistum Stjórnlagaráð, sem hafði það hlutverk að smíða tillögur að nýrri stjórnarskrá, setti fram viðmið um hlutfall kosninga- bærra manna sem þyrfti til að kalla fram þjóðaratkvæða- greiðslu. Það viðmið var tíu prósent kosningabærra manna, sem eru um 23.500 manns. Ef þetta viðmið væri í stjórnar skrá væri því nóg að gera hjá íslenskum almenningi að kjósa yfir sig þjóðfélagsbreytingar, að kjósa um eignarhald á fyrir- tækjum, um flugvelli og alls kyns mál sem annaðhvort skuld- binda ríkissjóðs til fjárútláta eða skikka hann til að gefa frá sér tekjur. Frá ársbyrjun 2010 hefði íslenskur almenningur kosið um Icesave II, Icesave III, sölu á HS Orku, vegatolla, almenna skuldaniðurfellingu og afnám verðtryggingar, um að skuldbinda ríkissjóð til að eyða hluta áfengisgjalds til tilgreindra verkefna, um breytingar á veiðileyfagjaldi og um framtíð flugvallar í Vatnsmýrinni. 9/09 kjarninn stjórnmál smelltu til að lesa um það þegar forsetinn staðfesti lög um veiðigjald í júlí

x

Kjarninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.