Kjarninn - 29.08.2013, Síða 81

Kjarninn - 29.08.2013, Síða 81
reiðinnar, Góði dátinn Svejk, Meistarinn og Margaríta og Hundrað ára einsemd. Þær eiga nú ekki margt sameiginlegt, reiðiþrungin lýsingin á hroðalegri meðferð mannvonskukapítalismans á uppflosnuðum bændum frá Oklahoma, háðsádeilan um sigur heimskunnar yfir vitfirringu fyrri heims- styrjaldarinnar, hin snarbannaða dæmisaga um hvaða usla djöfullinn gæti gert af sér í sæluríki Stalíns og furðusagan um landnám, ris og fall smáþorps í frum- skógum Suður-Ameríku. En af hverju ættu þær svo sem að eiga eitthvað sameiginlegt? Það bæri nú þessum lesanda ekki vel söguna að hafa svo einfaldan smekk að uppáhaldsbækurnar væru meira eða minna eins. Hvað þarf til að bækur verði manni hjartfólgnar? Það hjálpar að kynnast þeim ungur. Ég las stytta og (mjög) einfaldaða útgáfu af Steinbeck í ensku í 8. bekk og fór strax um jólin og notaði jólagjafapeningana frá afa og ömmu til að eignast hana í fullum gæðum á íslensku. Það sem óréttlætið í henni sauð á mér! Það sem þessi góða en ógæfusama Sjód-fjölskylda varð mér nákomin. Stríðsbók Haseks kynntist ég við að hlusta með óþægi- legri blöndu af andakt og hláturkrampa á flutning Gísla Halldórssonar í útvarpinu. Ég geri ráð fyrir að frum- upptökur þessa afreks séu nú varðveittar í eldtraustum skáp í forsætisráðuneytinu, enda einn af hornsteinum þjóðmenningar Íslendinga á 20. öld, þessi endaleysis- og glóruleysissaga sem tékknesk fyllibytta setti saman kafla fyrir kafla til að eiga fyrir túr næstu viku og kláraði að sjálfsögðu lifrina á undan sögunni. Jólin þegar ég notaði fyrrnefnt fjárframlag for- feðranna til að kaupa höfuðverk Marquezar í algerri blindni gleymast seint. Einhvern tímann milli jóla og nýárs sátum við vinirnir í herberginu mínu og vissum ekki alveg hvað við ættum að taka okkur fyrir hendur. Við vorum nú ekki vanir að lesa hver fyrir annan en af einhverjum ástæðum opnaði tilvonandi trommuleikari Greifanna bók og byrjaði: „Á meðan Aurelíano Búendia 2/05 kjarninn Exit
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94

x

Kjarninn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.