Kjarninn - 12.12.2013, Síða 47
38/43 kjarninn BÍLaR
eldfjall jarðar. Veðurfar svæðisins er mjög þurrt og því sjald-
gæft að snjór þeki tinda fjallsins, en þó er hjarn eða smáar
jökulbreiður sem leynast í hlíðum þess. Fjallið skartar einnig
litlu stöðuvatni í 6.390 metra hæð, því hæsta í heiminum að
talið er.
Um það hefur verið deilt hvort fjallið teljist vera virkt
eða ekki, þar eð síðast gaus þar fyrir um það bil 1.300 árum.
Vísbendingar eru þó um að
það hafi hóstað upp ösku
árið 1993, sem vissulega
gerir það virkt í jarðfræði-
legum skilningi. Ojos del
Salado telst til eldkeilna,
eins og Hekla, Bárðar-
bunga, Snæfellsjökull og
fleiri íslenskar eldstöðvar.
Nafn sitt, sem gæti útlagst
á íslensku sem „Sölt augu“,
dregur fjallið af gríðar-
stórum salthaugum sem
myndast hafa í hlíðum
þess.
tæknilega auðvelt að komast á tindinn
Eldfjall þetta var fyrst klifið í febrúar árið 1937. Þrátt fyrir
mikla hæð er tæknilega auðvelt að komast á tindinn, hlíðar
þess eru að mestu aflíðandi, utan lokakaflans upp á tindinn.
Af þessum sökum var Ojos del Salado aðlaðandi kostur
fyrir hóp framtakssamra manna sem hugðust setja hæðar-
heimsmet á vélknúnu ökutæki.
Hópur átta manna á vegum Volkswagen reið á vaðið,
snemma árs 2005. Ferðin gekk ágætlega og fengu leiðangurs-
menn heimsmet sitt staðfest af útgefendum heimsmeta-
bókar Guinness nokkrum dögum síðar, 6.080 metra hæð yfir
sjávarmáli.
Næstur í röðinni var Þjóðverji að nafni Matthias Jeschke
á Toyota Land Cruiser-jeppa. Þetta sama ár, 2005, tókst