Kjarninn - 27.02.2014, Blaðsíða 10
03/07 Efnahagsmál
var ráðinn voru í fyrsta skipti í sögu Seðlabankans gerðar
hæfniskröfur um menntun og reynslu til verðandi seðla-
bankastjóra. Sérstök nefnd, sem Jónas Haralz veitti forstöðu,
mat hæfi umsækjendanna og komst að þeirri niðurstöðu að
Már væri hæfastur þeirra sem sóttu um stöðuna. Áður hafði
ráðning seðlabankastjóra verið i höndum sitjandi forsætis-
ráðherra. Hvort fyrirhugaðar breytingar á lögum um Seðla-
bankann fela í sér breyttar hæfniskröfur mun tíminn einn
leiða í ljós.
Væringar sem engum eiga að koma á óvart
Væringarnar í kringum Seðlabankanum eiga í raun ekki að
koma neinum á óvart sem fylgst hefur með umræðunni um
hann undanfarin misseri. Eftir að ráðamenn Seðlabankans,
með Má Guðmundsson í broddi fylkingar, sögðu fyrir efna-
hags- og viðskiptanefnd Alþingis í nóvember að lánshæfis-
einkunn ríkissjóðs yrði mögulega lækkuð
niður í ruslflokk ef sjálfstæði bankans
yrði haft að engu og hann skikkaður til
að fjármagna boðaðar skuldaleiðréttingar
brást Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra ókvæða við.
Í sjónvarpsviðtali í fréttatíma Stöðvar
2 í kjölfarið, hinn 18. nóvember síðastliðinn, sakaði hann
Seðlabankann um að stunda pólitík fremur en að sinna
lög bundnum verkefnum sínum um almenna stjórn efna-
hagsmála. Þetta ætti ekki við um alla starfsmenn bankans
en þar innan húss væru nokkrir starfsmenn sem væru í
stöðugri pólitík. Menn sem væru greinilega að gíra sig upp
í það að vera á móti fyrirhuguðum hugmyndum um skulda-
leiðréttingar, en ríkisstjórnin myndi ekki láta Seðlabankann
stöðva sig.
Ummæli forsætisráðherra urðu til þess að viðtal við Má
Guðmundsson seðlabankastjóra birtist hinn 26. nóvember á
vefsíðunni CentralBanking.com, sem er alþjóðleg fréttaveita
sem sérhæfir sig í fréttaflutningi af seðlabönkum, alþjóð-
legum fjármálastofnunum og innviðum og regluverkum
„Hvort fyrirhugaðar breytingar
á lögum um Seðlabankann
fela í sér breyttar hæfniskröfur
mun tíminn einn leiða í ljós.“