Kjarninn - 27.02.2014, Side 87

Kjarninn - 27.02.2014, Side 87
03/03 markaðsmál krefjandi starf Starfsmaður í hefðbundinni verslun sér hvað viðskiptavinir hans skoða áður en þeir kaupa af honum en á vefnum getur það reynst erfiðara. Fólk á það til að vinna í tómarúmi ef heimsóknartölurnar eru ekki skoðaðar á gagnrýninn hátt. Oftar en ekki er vefstjórn krefjandi og misskilið verkefni sem þarf að hlúa að. Starf vefstjórans á 180 mínútum er námskeið fyrir þá sem vilja fræðast betur um grunnstoðirnar í starfinu. Þá býður Vefakademían upp á kynningu á Google Analytics og Webmaster Tools-greiningarkerfunum í sér- stöku námskeiði þar sem rýnt verður í það hvernig tölfræði getur nýst sem best á vefnum. Rétt not á talningartólunum getur algjörlega breytt því efni sem fer inn á vefinn. Með tólunum er hægt að sjá hvaða efni er skoðað og hvert notend- ur fara áður en notandi tekur ákvörðun um að kaupa vörur, lesa meira eða hvað það er sem vefurinn ætlast til af honum. Ekki má gleyma að tölfræðin á bak við vefinn er öflugt tól í samvinnu við stjórnendur fyrirtækja því gott er að geta sýnt árangurinn svart á hvítu, hvað virkar eða virkar ekki á vefnum, og nýtt tölurnar til að gera vefinn betri, í stað þess að vinna í blindni og henda inn efni sem ekki á heima á vefnum, bara til að hafa yfirmanninn góðan. stolt yfir vefgeiranum Markmiðið með námskeiðunum er að hjálpa vefstjórum, markaðs stjórum, kerfisstjórum, viðmótsforriturum, hönnuðum og öllum þeim sem koma að vefmálum í sínu daglega starfi og að efla íslenska vefgeirann enn meira. Að baki góðum vef liggur alltaf gott samstarf og þekking, smá metnaður og dass af gleði. Við megum vera mjög stolt af hæfileikum Íslendinga í vefgeiranum en við þurfum að auka fjölda þeirra sem starfa í geiranum. Á hverju ári skapast fleiri störf og til verður enn meiri eftirspurn eftir góðum starfskröftum.

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.