Kjarninn - 27.02.2014, Side 59

Kjarninn - 27.02.2014, Side 59
02/04 álit manns eins og Breivik. Fyrir áhugasama má einnig benda á bók sem gefin var út á árinu 2013 um verjandastörf Geirs Lippestad í umræddu máli. Í Kastljósi hjá RÚV mánudaginn 17. febrúar síðastliðinn var síðan birt viðtal við Lippestad þar sem hann svaraði spurningum um þetta tiltekna mál og áhrif máls sem þessa á heilt samfélag sem og viðbrögð samfélagsins við því. Í viðtalinu lagði hann áherslu á að mikilvægt væri fyrir samfélag að ræða mannréttindi sem grundvallarréttindi til þess að leitast eftir því að vera sammála um hvaða skilning við setjum í þau hugtök sem þar koma fyrir. Aðallega væri það til þess að við gætum treyst á þau grundvallarréttindi þegar syrfi að í samfélaginu. Það, að hans mati, er mikil- vægt fyrir réttarríkið. hvað er réttarríki? Við einfalda leit á internetinu má lesa sér til um grundvallarhugmyndir um réttarríkið í erindi dr. Oddnýjar Mjallar Arnardóttur, prófessors við Háskóla Íslands, sem flutt var á fundi sem haldinn var í Háskólanum í Reykjavík í nóvember 2008, rétt eftir bankahrunið. Já, eða á ég kannski að segja hið svokallaða bankahrun í ljósi ályktunar stjórnar Lögmanna- félags Íslands frá 23. júní 2009. Þessi ályktun birtist nokkrum mánuðum eftir umsögn laganefndar sama félags þar sem nefndin lýsti því að hætta væri á að grundvallar- mannréttindum væri hætta búin vegna fyrirhugaðra laga um rannsóknarheimildir þeirra sem átti að fela rannsókn á hinu svokallaða bankahruni. Það er ljóst að lögmannastéttin hafði snemma áhyggjur af réttarríkinu þegar kom að rannsókn á flóknum fjármálagerningum. frekari ályktanir Í fjölmiðlum hafa síðastliðin misseri verið birtar fjölmargar blaðagreinar þar sem verjendur sakborninga í efnahags- brotamálum lýsa miklum áhyggjum af því að skjólstæðingar „Aðallega væri það til þess að við gætum treyst á þau grundvallar- réttindi þegar syrfi að í samfélaginu.“

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.