Kjarninn - 03.04.2014, Síða 13
03/04 SjáVarútVegur
2012 og var rekstrarhagnaðurinn 10,3 milljónir evra, ríflega
1,5 milljarðar króna, en rekstrartekjur námu 55,7 milljónum
evra, um 8,6 milljörðum króna. Hagnaður á árinu 2012, að
teknu tilliti til allra þátta, nam tæplega 4,4 milljónum evra
eða sem nemur um 680 milljónum króna. Langtímaskuldir í
lok árs 2012 námu 105,5 milljónum evra, eða sem nemur 16,3
milljörðum króna. Samkvæmt ársreikningi er
80 prósent af þeirri upphæð á gjalddaga síðar
en árið 2017. Langstærsti hluta þeirra skulda er í
öðrum myntum en íslensku krónunni.
Þrátt fyrir að eigið fé félagsins sé neikvætt um
12,7 prósent telja stjórnendur félagsins það vera
rekstrarhæft þar sem félagið sé með traustan
rekstur sem standi undir skuldunum, að því er
segir í skýringum ársreikningsins.
Dæmt gegn Vísi
Vísir hefur undanfarin ár deilt við Lands bankann
um lögmæti gengistryggðra lána bankans til
félagsins, það er hvort þau séu í krónum eða
erlendum myntum. Miklir hagsmunir voru í húfi
fyrir félagið enda skuldabyrðin þung, eins og
áður segir, og ef lánin hefðu verið dæmd ólög-
mæt gengistryggð lán í krónum hefði það getað haft mikil
jákvæð áhrif fyrir rekstur félagsins. Um tvo lánasamninga
var að ræða, annars vegar frá árinu 2004 og hins vegar frá
árinu 2007. Lánið árið 2004 var upp á fjóra milljarða króna
til fimmtán ára var bundið gengi við myntkörfu evru, punds,
eignarhald á Vísi hf.
Fjölskyldufyrirtæki með langa sögu
Eigendur Vísis hf. eru, samkvæmt upplýs-
ingum úr ársreikningi fyrirtækisins fyrir árið
2012:
Q Páll H. Pálsson 13,6%
Q Margrét Sighvatsdóttir 13,6%
Q Pétur Hafsteinn Pálsson 13,6%
Q Kristín Elísabet Pálsdóttir 13,6%
Q Margrét Pálsdóttir 13,6%
Q Svanhvít Daðey Pálsdóttir 13,6%
Q Sólný Ingibjörg Pálsdóttir 13,6%
Q Páll J. Pálsson 4,8%
Páll, hinn síðastnefndi, situr á þingi fyrir
Framsóknarflokkinn.
Stoðunum kippt undan atvinnulífinu á Stöðunum þremur
Sú aðgerð Vísis að færa starfsemina alla á einn stað
í Grindavík hefur mætt mikill andstöðu á Þingeyri,
Djúpavogi og Húsavík, sem von er. Stéttarfélög
hafa harðlega mótmælt aðgerðunum og hafa
sérstaklega kvartað yfir því að fyrirvarinn sé stuttur.
Þetta kippi einfaldlega of hratt stoðunum undan
atvinnulífi á svæðum þar sem það var ekki burðugt
fyrir. Á Húsavík verður allri starfsemi hætt 1. maí
en Vísir hefur boðið starfsfólki vinnu í Grindavík og
aðstoð við flutninga á staðinn ef fólk kýs að halda
áfram vinnu hjá fyrirtækinu. Ekki er mikill áhugi
hjá starfsfólki á þessum stöðum á því að flytja sig
um set til Grindavíkur og því hafa heimamenn og
sveitarstjórnar menn á stöðunum leitað leiða undan-
farna daga til þess að viðhalda starfseminni með
einhverjum hætti, til dæmis með aðkomu annarra
útgerðarfyrirtækja. Ekkert er þó í hendi enn sem
komið er.