Kjarninn - 03.04.2014, Blaðsíða 79
02/03 karolina funD
tekið er upp í einn dag, og kvikmynd búin til, þar sem undir-
stöðuatriði verkefnisins er að „leysa hið óþekkta úr læðingi“.
En hver er listamaðurinn á bak við þetta allt saman?
„Ég heiti Kitty Von-Sometime og hef búið á Íslandi í
næstum því níu ár. Ég er listamaður, framleiðandi, leikstjóri,
DJ, móðir, þráhyggju-garðyrkjumaður og djöfulli góður
kokkur. Ég hef engan bakgrunn í raun, hef bara lifað litríku
frábæru lífi. Innblásturinn
hefur komið frá æskudraumum
mínum, frá því að sjá samhengi
í ótengdum atvikum, frá því
að frelsa aðra frá þeirra eigin
hömlum, og persónulegri þrá-
hyggju fyrir spandexi. Ég reyni
að fá fólk með mér í verkefnið,
sem ekki er endilega listamenn,
en vill verða að listaverki, upp-
lifa listina og finna fyrir list.
Fólkið sem ég vinn með er oft
fólk sem ég hef aldrei áður hitt.
Í verkunum er djúp undir-
alda kvenlegra krafta sem
bresta fram, sérstaklega þegar
kemur að kvenlíkamanum. En
fyrst og fremst snýst verkefnið
um að bjóða áhorfandanum í
gerviheim, nammiland þar sem
þeir fá vatn í munninn – skap-
andi tilfinningu sem segir þeim
að þá langi út að leika.
Ég hef ekki menntað mig í listaskóla, en þeim mun meira
sem ég skapa, þeim mun meir langar mig til
þess. Svo hefur mér aldrei leiðst.“
Hvað er The Weird Girls verkefnið? Hvenær byrjaði það, af
hverju, og hvert ertu að fara með það?
„Verkefnið byrjaði sem eitt verkefni, ekki ætlað til þess að
verða að framhaldsverkefni, ætlað að verða framúrstefnulist.