Kjarninn - 03.04.2014, Blaðsíða 18
10/13 ViðSkipti
félagsins á Íslandi væri óviðunandi og til trafala fyrir fyrir-
tækið, þar sem samkeppni eykst dag frá degi á öllum helstu
mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu og Asíu.
Á aðalfundi CCP 27. mars síðastliðinn var það sama uppi
á teningnum hvað erlenda hluthafa varðar og raunar þá
íslensku sömuleiðis. Mikið var rætt um hvernig fyrirtækið
gæti haldið samkeppnishæfni gagnvart öðrum fyrirtækjum í
tölvuleikjaiðnaði og hvort það væri verjandi að láta „hjartað
í fyrirtækinu slá á Íslandi“, eins og einn viðmælenda komst
að orði. Að auki var rætt mikið um rekstur fyrirtækisins og
ákvarðanir stjórnenda, eins og ítarlega er rakið í hliðarefni
þessarar greinar.
Staða efnahagSmála veldur öSSuri miklum áhyggjum
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, segir að engin
ákvörðun hafi verið tekin um flutning höfuðstöðva
fyrirtækisins úr landi. Í samtali við Kjarnann segir
hann enga sérstaka athugun í gangi í þeim efnum,
en fyrirtækið fylgist vel með og meti stöðuna á
hverjum tíma. Ráðaleysi stjórnvalda í efnahags-
málum, óútfært plan um afnám gjaldeyrishafta
og áform stjórnvalda um að draga aðildarumsókn
Íslands að ESB til baka valdi fyrirtækinu miklum
áhyggjum.
Össur undirritaði 9. mars 2011 samning við þrjá
alþjóðlega banka, ING Bank, Nordea og SEB,
um langtíma fjármögnun að fjárhæð 231 milljón
Bandaríkjadala. Meðalvextir lánasamningsins voru
125 punktar ofan á millibankavexti, en Össur hefur
fengið fjármögnun á mun betri kjörum á alþjóð-
legum mörkuðum en innan hafta á Íslandi.
Til samanburðar má nefna að í skuldabréfaútboði
Íslandsbanka í desember, að upphæð 500 milljónir
sænskra króna eða sem nemur 9,1 milljarði ís-
lenskra króna, báru skuldabréfin 400 punkta ofan á
sænska millibankavexti.
Óþarfi er að fjölyrða um vaxtakjör Össurar ef fyrir-
tækið þyrfti alfarið að reiða sig á fjármögnun hjá
íslenskum fjármálastofnunum.