Kjarninn - 03.04.2014, Blaðsíða 17
09/13 ViðSkipti
m
ikil barátta hefur átt sér stað bak við tjöldin
undanfarin misseri í viðskiptalífinu og
stjórnmálunum vegna þeirrar stöðu sem
fjármagns höftin, þrotabú föllnu bankanna
og ákvörðun stjórnvalda um að draga
formlega til baka umsókn um aðild að Evrópusambandinu
hefur framkallað. Að hluta snýr hún að vaxandi þrýstingi
frá erlendum fjárfestum sem eru í hluthafahópi margra af
helstu útflutningsfyrirtækjum Íslands í iðnaði, meðal annars
Össurs, Marels og CCP. Þeir spyrja einfaldlega; af hverju
eigum við að vera með fyrirtækin hér? Hvað græðum við
á því? Til þessa hafa íslensk stjórnendateymi og sérfræði-
þekking í rannsóknum og þróun verið helsta hindrun þess
að fyrirtækin hafi farið formlega úr landi, með tilheyrandi
skatttekjumissi fyrir þjóðarbúið og minni ávöxtunar-
möguleikum á fjármálamarkaði. Fyrirtækin verða ekki fjar-
lægð úr landi eins og hendi sé veifað, það er öll starfsemin,
en stór skref til viðbótar við þau sem þegar hafa verið stigin
verða upphafið að endalokum þess að flaggskip íslensks
hugverkaiðnaðar verði hér með rætur til framtíðar litið.
Stefnubreyting á aðalfundum í mars
Á aðalfundi Össurar á þessu ári, sem fór fram 14. mars síðast-
liðinn, var Niels Jacobsen, stjórnarformaður félagsins, veru-
lega áhyggjufullur yfir stöðu mála hér á landi, þá einkum
peningamálunum og fjármagnshöftunum. Þá gagnrýndi
hann íslensk stjórnvöld harðlega fyrir að vilja draga aðildar-
umsóknina að Evrópusambandinu til baka og sagði augljós-
lega ekki hægt að reka alþjóðlegt fyrirtæki á stað þar sem
„gjaldmiðillinn væri varla til“. Í einkasamtölunum við þá sem
sátu fundinn og eru í hlutahafahópi Össurar var Jacobsen
enn ákveðnari og lét í það skína að úrslitaákvarðanir um
framhald fyrirtækisins hér á landi væru handan við hornið.
Staðan væri óviðunandi og fyrir hluthafana gæti hún ekki
verið til lengdar. Svipaðar raddir mátti heyra á aðalfundi
Marels 5. mars síðastliðinn, ekki síst frá fulltrúum erlendra
hluthafa, sem töluðu skýrt um það að rekstrarumhverfi
ViðSkipti
Magnús Halldórsson
L @maggihalld
„Þeir spyrja
einfaldlega; af
hverju eigum
við að vera með
fyrirtækin hér?“