Kjarninn - 03.04.2014, Qupperneq 22
13/13 ViðSkipti
Einn þeirra sem svara póstinum er Sigurður Arngrímsson,
ráðgjafi og fyrrverandi starfsmaður Morgan Stanley-bankans í
London. Orðrétt segir hann: „Ég fæ ekki betur séð en þetta sé allt
rétt. Davíð er auðvitað að draga athyglina frá sjálfum sér hvað
varðar klúður í Seðlabankanum. Ég fæ ekki betur séð en hann
sé nú klárlega dýrasti maður lýðveldisins. Hvernig væri að fara
svolítið yfir það?“
mikil pressa
Í ofanálag við þessa baráttu bak við tjöldin, ýmist í hluthafa hópum
margra stærstu fyrirtækja landsins eða á hinu viðskipta pólitíska
sviði, blandast undirliggjandi pressa sem er á ráða mönnum
landsins, einkum þeim Bjarna Benediktssyni, efnahags- og
fjármálaráðherra, og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætis-
ráðherra. Þeir hafa það í hendi sér hvaða stefna verður ofan þegar
kemur að afnámi hafta og mörkun nýrrar peningastefnu fyrir
landið. Spurningum um hvernig þessum málum verður háttað er
flestum ósvarað, í það minnsta í nákvæmisatriðum.
bara tilfinningalegar áStæður fyrir því að halda CCp á íSlandi
Ræða Hilmars Veigars Péturssonar, framkvæmda-
stjóra CCP, á Iðnþingi í byrjun mars fór vart framhjá
mörgum. Þar fór hann meðal annars yfir feril CCP,
hinn mikla uppgang sem fyrirtækið hefði gengið í
gegnum og hvernig það væri að stýra alþjóðlegu fyrir-
tæki í höftum og með íslenskri krónu. Hilmar sagði
einnig frá því að tilboðum um að færa CCP til útlanda
hefði rignt inn og að erlend sendiráð hérlendis væru
mjög dugleg að tala við fyrirtæki sem „vit er í“. Í dag
væri staðan þannig að þeir sem næðu árangri á hans
vettvangi settu ekki upp fyrirtæki á Íslandi. Hann hefði
hins vegar ákveðið að CCP yrði áfram á Íslandi í stað
þess að fara til dæmis til Kanada, en þar bauðst CCP
að borga enga skatta í fimm ár ef það flytti sig. Hilmar
sagði ástæðu þess að hann hefði ekki flutt fyrirtækið
einvörðungu byggða á tilfinningum. Eftir á að hyggja
hefði það ekki verið sérstaklega góð ákvörðun. „Það
stenst enga skoðun ef maður skoðar staðreyndirnar.
Það meikar ekkert sens,“ sagði hann í ræðu sinni.
Skömmu eftir ræðuna frægu birti CCP uppgjör
sitt fyrir árið 2013. Þar kom í ljós að bókfært tap
hefði verið 21,3 milljónir dala eða um 2,4 milljarðar
króna, þrátt fyrir að rekstrartekjur hefðu aukist
umtals vert á milli ára. Ástæða tapsins er að óefnis-
leg eign var færð niður um 49,2 milljónir dala, eða
um rúma 5,5 milljarða króna. Um er að ræða rann-
sóknar- og þróunarkostnað vegna tveggja verkefna:
helstu tekjulind CCP Eve Online og fyrstu persónu-
skotleiknum DUST 514.
Stjórnendur CCP hafa ekki viljað sundurgreina
hversu mikið tap er vegna hvors verkefnis fyrir sig
en ljóst er að gjaldfærslan er tæplega fjórum sinn-
um hærri en hún var vegna ársins 2012, þegar hún
náði einungis til Eve Online. Afskrifaður kostnaður
vegna DUST 514 er því stór hluti af tapi síðasta árs.
Þetta tap fór, samkvæmt heimildum Kjarnans,
ekki vel í erlenda hluthafa CCP og bjó til nýja
samnings stöðu fyrir þá sem vilja flytja höfuðstöðvar
CCP burt frá Íslandi. Þegar þeir komu hingað til
lands til að vera viðstaddir aðalfund CCP ræddu
þeir, og aðrir hluthafar fyrirtækisins, fram og til
baka um flutning höfuðstöðva úr landi. Niður staðan
er sú að endanleg ákvörðun liggur ekki fyrir en
menn sjái ýmsa skýra kosti þess að fara.