Kjarninn - 03.04.2014, Page 46
kom malcolm Walker 365 til bjargar?
Fjölmiðlar 365 miðla básúnuðu að venju stórkostlega
rekstrarafkomu samstæðunnar í síðustu viku án þess
að ársreikningur væri birtur samhliða. Reyndar fylgdi
sögunni að 2/3 hlutar hagnaðarins væru vegna þess
að 365 hefði selt Póstmiðstöðina, sem dreifir Frétta-
blaðinu, í lok síðasta árs. Engar eigendabreytingar eru
hins vegar skráðar í fyrirtækjaskrá og fyrirtækið enn
skráð í eigu 365. Einu upplýsingarnar sem er að finna
um mögulega eigendur eru fréttir frá því í janúar að
Malcolm Walker, kenndur við Iceland, hafi ætlað að
kaupa fyrirtækið af gömlu viðskiptafélögum sínum.
framsókn vill nýta tækifærin og hreinsa loftið
Það fóru ansi margir af hjörunum þegar forsætis-
ráðherra sagðist sjá atvinnuskapandi tækifæri fyrir
Ísland í neikvæðum áhrifum loftslagsbreytinga á
heiminn allan. Í ályktun landsþings Framsóknar segir
að „Með hlýnandi loftslagi skapast ný og spennandi
sóknarfæri ... fjölbreyttari innlend matvæla framleiðsla
er hluti af því að efla íslenskan land búnað“. Í annarri
ályktun segir hins vegar að við verðum að gera miklar
kröfur til „hreinleika andrúmsloftsins og umhverfisins
alls“. Sigmundur er því samkvæmur annarri ályktun-
inni en í andstöðu við hina. Það er ágætis árangur.
af netinu
Samfélagið segir
kjarninn 3. apríl 2014
facebook twitter
örn Úlfar SævarSSon
Hægt er að sækja um Leiðréttinguna ógurlegu
á tímabilinu 15. maí til 1. september 2014.
Maður hefur semsagt alveg maí, júní, júlí og
ágúst til að pæla í hvort maður ætli að fá þetta?
Þriðjudagur 1. apríl
Silja bára ómarSdóttir
Eruði að grínast með að Englar alheimsins,
sýningin sem ég missti af vegna ferðalaga, sé í
beinni akkúrat þegar ég sit á flugvelli?
sunnudagur 30. mars
freyr eyjólfSSon
Er staddur í stuttri Íslandsheimsókn. Hitti
gamla frænku í Bónus, sem heilsaði mér með
þessum orðum: "Mikið lítur þú vel út, og þú ert
með þínar eigin tennur og allt"
miðvikudagur 2. apríl
þoSSi @thossmeister
Alltaf jafn vinaleg skilnaðar stemmning í
Krossinum
miðvikudagur 2. apríl
maría lilja þraStar @marialiljath
Hví að sætta sig við einhvern ísbjörn í
Húsdýragarðinn þegar hægt er að bíða
smá og fá þann allra síðasta. #tourists
#tækifæriíhlýnunjarðar
miðvikudagur 2. apríl
þóra tómaSdóttir @thoratomas
ég er orðin svo beitt í skattframtalinu að ég
gæti skorið gler með augnaráðinu #virðisauki
#útskattur #troðiðþessu
þriðjudagur 1. apríl
01/01 Samfélagið Segir