Kjarninn - 03.04.2014, Page 50
02/07 Viðtal
B
andaríski vefrisinn Google hefur undanfarin
fjögur ár víkkað starfsvið sitt úr heimi hug-
búnaðar á veraldarvefnum og hafið stórsókn á
hinum ört vaxandi snjallsímamarkaði. Fyrstu
skrefin voru stigin þegar Google gaf út Android-
stýrikerfið fyrir snjallsíma árið 2008 og rúmu ári síðar
hóf það sölu á Nexus-símanum sem er sérhannaður fyrir
stýrikerfið. Síðan hefur Google keypt fjölda fyrirtækja sem
hanna og smíða vélbúnað. Má þar nefna Nest, fyrirtæki sem
Kjarninn greindi frá fyrir skemmstu og framleiðir reyk- og
gasskynjara fyrir heimilið. Google ætlar þó ekki aðeins að
taka þátt í samkeppni um tækni sem þegar hefur verið svo
sem nánast fullkomnuð heldur horfir langt til framtíðar: Í
gegnum Google Glass.
Maður er nefndur Robert Wong.
Hann er grafískur hönnuður, starfar
sem yfirhönnuður á hönnunarstofu
Google í New York og á heiðurinn
af mörgum af helstu listasmíðum
fyrirtækis ins, bæði á vefnum og í
„raunheimum“. Wong var staddur hér
landi um síðustu helgi í tengslum við
Hönnunarmars og kynnti starf sitt og þá
miklu hönnunarvinnu sem fram fer hjá
Google á hverjum degi. Með honum í för
var kennsluteymi frá Lundúnum sem leyfði áhugasömum að
prófa Google Glass í verslun Advania í Guðrúnartúni.
myndband varð upphaf að nýrri tækni
Það er engin tilviljun að Google Glass-teymið hafi fylgt
yfirhönnuðinum hingað til lands því Wong, ásamt
hönnunarteymi sínu í New York, á heiðurinn af hvernig
tölvugleraugun virka. Fyrir tveimur árum hóf Google að þróa
þessa nýju tækni sem gerir notandanum kleift að fá hvers
kyns upplýsingar birtar á örlítinn skjá rétt innan við jaðar-
sjón sína. Þá var hins vegar óljóst hvernig og hvaða upplýs-
ingar áttu að birtast fyrir augum notandans. Wong ákvað
Viðtal
Birgir Þór Harðarson
L @ofurbiggi
„Fyrir mér er takmarkið að
tæknin hverfi, þó að við munum
alltaf njóta þess sem tæknin
býður uppá. Ég veit auðvitað
ekkert hvernig það mun líta út.
Kannski verður þetta Star Trek-
pinni, fötin þín, eitthvað sem þú
setur í eyrað, jafnvel derhúfa.“