Kjarninn - 03.04.2014, Page 53
05/07 Viðtal
Vinnur við að ímynda sér framtíðina
Verkefni hönnunarstofu Google sem Wong stýrir eru marg-
þætt. Teymið hans hefur meðal annars annast hin svokölluðu
„Doodles“, sértæku Google-merkin sem birtast reglulega
fyrir ofan leitarstrenginn á forsíðu Google. Sjálfur segist
hann ekki alveg vita hvað það er sem hann gerir, annað en
að reyna að varpa upp mynd af því hvernig tæki nánustu
framtíðar eigi að líta út.
„Ég vildi að það væri einhver einföld starfslýsing, en
þetta er lítið teymi grafískra hönnuða, textahöfunda og
kvikmyndagerðarmanna. Ímyndaðu þér þróunarstofu, en í
staðinn fyrir vísindamenn og verkfræðinga eru listamenn
og hönnuðir. Og vegna þess að við
erum listamenn og hönnuðir er verk-
efnið okkar að fikta í tækjum og tólum,
ímynda okkur hvað hægt er að gera með
núverandi tækni eða hvernig hægt er
að sameina tækin til að búa til ný. Svo
leitum við leiða svo að tækin séu notenda-
væn; í raun allt sem við höldum að geti orðið nytsamlegt eða
skemmtilegt.“
Wong starfaði áður sem grafískur hönnuður og kom með-
al annars að vinnu við að endurhanna og fríska upp á vöru-
merki Starbucks-kaffihúsakeðjunar. Spurður hvort það hafi
verið viðbrigði að hefja störf hjá jafn stóru og framsæknu
fyrirtæki eins og Google segir hann það helst hafa komið á
óvart hversu hröð samskiptin voru innan fyrirtækisins. Þrátt
fyrir að annast meiri vöruhönnun nú en hann gerði áður
sem grafískur hönnuður segir hann muninn ekki vera það
mikinn. Í raun sé hann ekki til staðar.
„Þetta var í raun og veru mjög náttúruleg breyting frá
upplýsingahönnun yfir í vöruhönnunina. Það er orðin
hefð meðal fyrirtækja og skóla að sérhæfa einstaklinga í
ákveðnum fögum og flokka þá niður; þessi á að vera um-
búðahönnuður, annar á að vera í umbroti, hinn á að vera
vörumerkjahönnuður, auglýsingahönnuður og þar fram
eftir götunum,“ segir Wong. Á ferli sínum sem vörumerkja-
„Það er magnað hversu
miklu er hægt að áorka
þegar það eru tímamörk á
verkinu sem maður sinnir.“