Kjarninn - 03.04.2014, Side 60

Kjarninn - 03.04.2014, Side 60
04/06 álit að hafa verið einhver um miðjan níunda áratuginn á meðan Kalda stríðið var enn í algleymingi en þegar komið var fram á tíunda áratug síðustu aldar hafði það fjarað út. Þá hentaði betur að heyja áróðursstríð við umhverfisverndarsamtök en troða illsakir við við stjórnvöld í Washington. ekkert til sparað Ísland sagði sig úr IWC árið 1991 en sýnt þótti að veiðar undir merkjum NAMMCO (Norður-Atlantshafssjávarspendýra- ráðsins) stæðust ekki þjóðarrétt þar eð aðildarríkin eru bara Ísland og Noregur, auk Færeyja og Grænlands, en hvorugt þeirra er fullvalda. Ekki dró því til tíðinda fyrr en í mars 1999, er Alþingi dró til baka fyrri þings- ályktun frá 1983 um að andmæla ekki hvalveiðibanninu. Nú skyldi siglt til veiða á ný. Til að auðvelda verkið kvað ályktunin einnig á um að Alþingi fæli „ríkisstjórn- inni að undirbúa hvalveiðar, meðal annars með því að kynna málstað og sjónarmið Íslendinga meðal viðskiptaþjóða okkar. Undirbúningur miði að því að veiðar geti hafist sem fyrst. Kostnaður við kynninguna verði greiddur úr ríkissjóði. Öllu kynningar- starfi verði flýtt svo sem auðið er“. Aldrei hefur fengist viðhlítandi svar við því hversu miklum fjármunum hefur verið varið í þetta kynningar átak, en samkvæmt upplýsingum bandaríska dómsmálaráðuneytisins greiddi íslenska ríkið almanna- tengslafyrirtækinu Plexus Consulting Group 180 þúsund dollara á ári, auk kostnaðar, frá árinu 2000 og allt þar til Einar K. Guðfinnsson lét af embætti í janúar 2009. Brottför hersins greiðir fyrir hvalveiðum Eftir að sendiherra Bandaríkjanna, James Gadsden, hafði tilkynnt Davíð Oddssyni forsætisráðherra að herinn væri á förum kynnti Ísland aðra fjögurra ára áætlun um „Því verður að spyrja hvort hvalveiðar gangi fyrir áherslum utanríkisráðherra á að efla tengslin við Washington. Hvaða hagsmuna- mat er þar að baki?“

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.