Kjarninn - 01.05.2014, Qupperneq 25
07/09 mEnntamál
Sjötti hver hræddur við valdafólk
Yfirgnæfandi meirihluti aðspurðra taldi mjög eða frekar
mikilvægt að vísinda- og fræðimenn tækju þátt í opinberri
umræðu um mikilvæg þjóðfélagsmál og rúm 60% töldu
að samfélagið væri móttækilegt fyrir þátttöku vísinda- og
fræðimanna í samfélags-
umræðunni en áttundi
hver var á öndverðri
skoðun.
Þá leiddi könnunin þá
athyglisverðu niðurstöðu í
ljós að sjötti hver svarandi
hafði komið sér hjá því að
tjá sig við fjölmiðla vegna
ótta við valdafólk úr
stjórnmála- og efnahags-
lífi, en mun færri, eða sjö
prósent svarenda, sögðust
hafa vikið sér undan því
að tala við fjölmiðla vegna
ótta við viðbrögð almenn-
ings. Í könnuninni var
einnig spurt hversu lík-
legt eða ólíklegt væri að
gagnrýni frá valdafólki í
stjórnmálum, efnahagslífi
eða atvinnulífi á vísinda-
menn myndi koma í veg
fyrir að svarendur í könnuninni tjáðu sig við fjölmiðla um
mál sem hefði mikla pólitíska þýðingu. Sjötti hver svarandi
taldi líklegt eða mjög líklegt að slík gagnrýni myndi hafa
áhrif á hann.
Sex prósentum hótað af stjórnmálamanni
Í könnuninni var spurt hvort háskólafólk hefði sætt gagn-
rýni af hálfu tiltekinna valdahópa eftir að hafa tjáð sig sem
vísinda- eða fræðimaður við fjölmiðla í tilteknu máli og
Hefur þú sjálf(ur) sætt gagnrýni frá
stjórnmálamönnum, valdafólki í
efnahagslífi eða öðrum hagsmuna-
aðilum í atvinnulífi eftir að hafa tjáð
þig sem vísinda- eða fræðimaður við
fjölmiðla í tilteknu máli? (Merktu við
allt sem við á)
Q Já, frá stjórnmálamanni/
mönnum Q Já, frá valdamanni/
mönnum í efnahagslífi Q Já,
frá öðrum hagsmunaaðilum í
atvinnulífi Q Nei, aldrei
Q Ég hef aldrei rætt við fjölmiðla
16,91%
10,50%
22,74%
43,73%
6,
12
%
Hefur þú sjálf(ur) sætt hótunum
af einhverju tagi frá stjórnmála-
mönnum, valdafólki í efnahagslífi
eða öðrum hagsmunaaðilum í
atvinnulífi eftir að hafa tjáð þig
sem vísinda- eða fræðimaður við
fjölmiðla í tilteknu máli? (Merktu við
allt sem við á)
Q Já, frá stjórnmálamanni/
mönnum Q Já, frá valdamanni/
mönnum í efnahagslífi Q Já,
frá öðrum hagsmunaaðilum í
atvinnulífi Q Nei, aldrei
Q Ég hef aldrei rætt við fjölmiðla
77,32%
6
,8
7
%
6,
19
%
5,84
%
3,
78
%