Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.08.1930, Blaðsíða 10
296
Frá Austur-Asíu.
[Stetfnir
þeirra stór, álíka og Stóra-Bret-
land, en önnur eru ekki nema
nokkrar dagsláttur. Hinir tveir
þriðju partarnir af Indlandi,
Brezka Indland, mynda níu „skatt-
lönd“, sem eru öll afarstór og
fjölmenn. Rannsókn sýndi, að af
þessum 316 miljónum, sem búa í
landinu, kunna aðeins tvær og
hálf miljón að lesa ensku.. Hin-
dustani er helzta túngumálið, en
1 Indlandi eru töluð 222 tungumál
og málýzkur. 71% af þjóðinni lif-
ir af landbúnaði, og er það miklu
meira en flesta mun gruna. Flest
þetta fólk veit ekkert sem skeður
fyrir utan túngarðinn, og hefir
engan áhuga á neinu nema því, aö
halda við fornum hleypidómum
um stéttaríg og hræðslu og hatur
til þeirra, sem þeir „eiga“ að hata.
Nefndin leggur mikla áherzlu
á, að koma smám saman á í Ind-
landi sjálfstjórnarfyrirkomulagi.
Lýsir nefndin því, sem gert hefir
verið í þessa átt. Svo er nú kom-
ið, að um 90% af embættismönn-
um í Indlandi eru Indverjar. Og
Indverjar stjórna meira og meira
upp á eigin hönd bæði heima í
héruðum og landinu öllu. En þetta
fer samt hægc og hægt, og Ind-
verjar eru allra manna óþolin-
móðastir. Þeir geta ckki hugsað
sér að bíða eftir neinu hægfara
sjálfstæði, heldur vilja fá þa5
strax. Telur nefndin það ekki geta
náð nokkurri átt, því að þá myndi
allt loga upp í styrjöldum og ó-
sköpum. Einkum er mikið or5
gert á hatrinu milli Múhameðs-
trúarmanna og Hindúa.
Nefndarálit þetta mun vafalaust
móta stefnu ensku stjórnarinnar
í Indlandsmálum, og er æstum
swarajistum þar ekkert gefið und-
ir fótinn.
KÍNA.
Orsakir borgarastyrjaldanna.
Áratugum saman hefir kín-
verska ríkið staðið í óslökkvandi
báli innanlandsstyrjalda. Hefir
lærður Kínverji, Wen-Ying-peng,
ritað merkilega ritgerð um orsakir
þessara stöðugu innanlandsóeirðar
einkum út af uppreisn „kristna
hershöfðingjans“ Feng-Yu-hsianff
gegn stjórn þjóðernissinna og
forseta þeirra, Chiang-Kai-shek.
Er minnst dálítið á þá uppreisn
í Stefni 1,2, og er svo að sjá, sem
ekki sé alveg búið að bíta úr
þeirri nál eins og út leit um tíma.
Wen bendir á kyrstöðu þá, sem
verið hefir í Kína, er geri það að
verkum, að allt fer á fleygiferð