Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.08.1930, Blaðsíða 39
Stefnir]
Alþingishátíðin.
325
ar nefndin var að undirbúa há-
tíðina. En þetta 'var bein afleið-
ing þeirrar ákvörðunar, að hafa
hátíðina á Þingvöllum.
Það var fyrsta vandamál nefnd-
arinnar, vandamál, sem ráða
þurfti til lykta áður en nokkuð
annað yrði gert: Átti að halda
hátíðina á Þingvöllum eða í
Reykjavík, eða á báðum þessum
stöðum? Skal ekki fara hér frekar
út í þetta mál, en það varð ofan
á, að taka þann kostinn, sem að
vísu var mest vogun, en líka
mestur sigur, ef vel gengi, að hafa
allan meginþunga hátíðahaldanna
á Þingvöllum og búa þar allt und-
ir ])riggja daga mannfagnað. —
Mjög mikið af starfi nefndarinn-
ar gekk svo út á það, að gera það
mögulegt, að reisa þarna bráða-
birgðabæ í óbyggðum, þann fjöl-
mennasta bæ, sem verið hefir á
íslandi. Og aðstaðan var ekki
betri en það, að það var ekki hægt
að finna svo mikið sem tjaldstæði
fyrir nándarnærri þennan mann-
fjölda, nema talsverðan spöl frá
sjálfu hátíðarsVæðinu. Varð þetta
«1 dálítilla óþæginda við hátíða-
höldin, en við því var ekki hægt
að gera, úr því að nefndin hafði
ekki verið viðstödd og átt íhlutun-
arrétt ])egar staðurinn og um-
Sigurður Thorarensen gllmukóngur.