Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.08.1930, Blaðsíða 21
Stefnir]
Ljóslækningar.
307
líkamans bæði súrefni frá lung-
unum, og fæðu frá þörmunum,
og hinsvegar að flytja burt þau
úrgangsefni, sem lífsbruninn eða
efnaskifti líkamans hafa í för með
sér. Þetta veitir þeim léttara, á
svipaðan hátt, og menn hafa séð
að vel öldum og þróttmiklum
hesti veitir léttara að bera mann
á bakinu langa leið, þó hratt sé
farið, heldur en horuðum og mátt-
linum hesti, sem hefir aðeins feng-
ið ónógt og illt fóður, og þar með
litla stælingu kraftanna.
í blóði heilbrigðra manna eru
ýms efni, svo sem kalkefni, fos-
fór, járn, mangan, joð o. fl. Þessi
efni eru nauðsynleg til vaxtar og
viðhalds hverri einustu frumu
líkamans, svo rauðu blóðkornun-
um sem öðrum. Þessi efni vaxa
til muna í blóðinu við hæfilega
geisla, hvort heldur er frá sólar-
ijósi ríku af ultraf jólubláum geisl-
um, eða „kunstugu“ rafmagnsljósi
Kieð sams konar geislum.
Blóðkornin eru bæði rauð og
hvít. Rauðu blóðkornin hafa á
hendi alla flutninga fyrir alla
borgara þessa þjóðfélags, en
hvítu blóðkornin inna af hendi
landvarnarstarf fyrir þjóðfélag-
og eru hermenn þess, og verja
það fyrir óvinum þeim, er á það
hevja, og vilja leggja Jteð undir
sig, en það eru sýklarnir, og slær
oft í harða sennu þeirra á milli.
Það er því næsta áríðandi, að
þeir meðlimir þjóðfélagsins, sem
falið er svo áríðandi starf, séu
ekki sveltir, því það mundi koma
þeim í koll, sem njóta eiga verka
þeirra, en það eru frumur líkam-
ans. Þær þurfa sinn mat og eng-
ar refjar. Þær þurfa ennfremur
og ekki síður þess, að frá þeim
sé flutt þau úrgangsefni, sem
valda mundu óþægindum, ef þau
væru ekki flutt burtu.
Margs konar sjúkdómsástand
kemur af skorti þessara lífrænu
saltsambanda, sem á hefir verið
minnst. Hinir ultrafjólubláu geisl-
ar hafa reynst hið allra kröftug-
asta vopn til þess, að koma nátt-
úrlegu jafnvægi á efnaskifti lí-
kamans og halda þeim í jafnvægi.
Það er kunnugt, að taugakerf-
ið stjórnar öllu starfi líffæranna.
Hæfilegur skammtur af ultra-
fjólubláum geislum á hörundið
hefir víðtæk áhrif á þá tauga-
enda, sem liggja út að yfirborði
líkamans. Þessi áhrif berast til
heilans, og hann sendir aftur út
boð með annari tegund tauga til
allra líffæra líkamans, um auk-
ið starf, aukna afkastasemi. Melt-
ingin verður fullkomnari en áð-
ur. Meltingarfærunum veitir létt-
20*