Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.08.1930, Blaðsíða 22
308
Ljóslækningar.
[Stefnir
ara að ná úr fæðunni þeim efn-
um, sem líkamanum eru nauð-
synleg, svo sem þeim lífrænum
söltum, sem nefnd voru. Vöðv-
arnir verða sterkari og þolnari.
Beinin traustari og öndunin dýpri,
svo að lungun geta fært blóðinu
meira af súrefni. Sólarljósið og
þá sérstaklega hinir ultrafjólubláu
geislar eru sá regin kyngikraft-
ur, sem heldur öllum efnaskift-
um líkamans í fullkomnu jafn-
vægi og öllu starfi líffæranna í
samræmi og eðlilegri samvinnu.
Að vísu þurfa einnig önnur skil-
yrði að vera til staðar, svo sem
gott og hreint loft, heilnæmt fæði
og hæfileg hreyfing. En án sól-
arljóss verður allt starf líffær-
anna ómögulegt og fer úr skorð-
um. Ef þess nýtur ekki við, er
líkaminn litlu betur farinn held-
ur en bifreið, sem vantar raf-
magnsneistann til þess að kveikja
í bensíninu. Ef börnin eru svift
sólarljósinu, verða þau föl, svip-
að og plöntur, sem vaxa í ónógu
ljósi. Þeir, sem hafa séð þau
börn, sem lifa mest úti undir
beru lofti, dökk á hörund af á-
hrifum sólarljóssins, og bólgin af
lífsþrótti og fjöri, og svo aftur
á móti þau börn, sem alist hafa
upp í dimmumkjallaraholum, blóð-
lítil og fjörlaus, með bogna leggi,
af kalkskorti, þeim er ljóst, hvaða
áhrif sólarljósið hefir á mann-
fólkið. Þar sem skortur er á sól-
arljósi, og börn eru veik orðin af
beimkröm og blóðleysi og ýmsum
fylgikvillum, þá hjálpar hið
„kúnstuga" ljós kvartslampans
eða kolabogalampinn, ágætlega,
Þeir gera blátt áfram kraftaverk
á stuttum tíma á þessum vesaling-
um, og hjálpa þeim frá því að
verða hvíta dauðanum að bráð.
Landlæknirinn hefir haldið því
fram, að algengum læknum sé
ekki trúandi fyrir þessum verk-
færum. Þetta nær ekki nokkurri
átt. Sannleikurinn er sá, að lamp-
ar þeir, sem framleiða ultrafjólu-
bláa geisla og jafnframt nokkra
hitageisla, eru ómissandi í hverju
einasta sjúkrahúsi. Þeir hjálpa í
mörgum tilfellum betur en nokk-
ur lyf, og þeim lækni, sem ekki
er trúandi fyrir þessum ljóstækj-
um, er ekki heldur trúandi fyrir
því að verða læknir, og annast
vanaleg læknisstörf.
Brautryðjendur sólarlækninga.
N. Finsens naut ekki lengi við,
en hann hafði orðið fyrsti braut-
ryðjandinn á sviði sólar- og ljós-
lækninga, og getið sér ódauðleg-
an orðstír. Eftir að hann hafði
fært sönnur á hinar læknandi