Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.08.1930, Blaðsíða 48
334
Alþing-ishátíðin.
[Stefnir
frá þingroannaþingi, stúdentamóti
eða öðru því, sem blöð hafa ná-
kvæmlega skýrt frá. Landssýning
á heimilisiðnaði, margar listsýn-
ingar o. fl., allt stóð'til boða og
skoðunar þeim, sem hafa vildu.
I>á var og heldur en ekki líflegt
á skipalæginu. Þar gat að líta
dreka marga og margskonar, bæði
friðsamleg farþegaskip eins og
hallir væru þar á floti og bryn-
dreka, gráa fyrir járnum. Bar
þar þó langt af öðrum og reyndar
af öllum þeim skipum, er hér
hafa sést, bryndrekinn, sem kom
með sendimenn brezka þing&ins,
og Rodney nefnist, eftir einum af
frægustu sjóliðsforingjum Breta.
Hvað hann vera næst stærsta skip
í flota Breta, og þá náttúrlega
eitthvert ógurlegasta herskip, sem
nokkru sinni hefir til verið. Lá
hann djúpt mjög og bar því ekki
mikið á honum úr landi að sjá,
en annað varð, er að honum kom.
Siglur hefir hann ekki nema eina
litla, nálægt aftúrstafni, en aft-
an við miðju er reistur stálturn
einn ferlegur, og eru í honum, á
mörgum loftum, öll þau verkfæri
og tæki, sem þarf til þess að
stjórna hverju viðviki á skipinu
í friði og orustu. Er turn þessi 60
fet yfir sjávarmál, og er svipmik-
ið að líta þaðan yfir skipið allt
og fallbyssur þess. Allt framþil-
far þess, aftur að turni, er autt
að öðru leyti en því, að þar eru
níu fallbyssur af stærstu gerð,
sem nú eru leyfðar á herskipum.
Þær eru um 50 álnir að hlaup-
lengd og 16 þumlungar er hlaup-
víddin. Eru þær byrgðar inni í
stálhvolfum miklum, sem snúa má,
ásamt byssunni, í allar áttir. —
Þurfa þeir, sem þeim miða, ekki
að fara út úr þessum hvolfum og
ekkert að sjá, heldur er byssun-
um miðað eftir reikningi þeirra,
sem í turninum hafast við. Standa
þessi voða-bákn og morðtól sam-
síða þrjú og þrjú og horfa beint
fram, ein röðin yfir annari.
Þá var friðsamlegra um að lit-
ast niðri í skipinu. Þar eru bú-
staðir fyrir allan þennan sæg,
sem á skipinu er, eða um 1500
menn, eldhús, til þess að matreiða
fyrir allan fjöldann, brauðgerðar-
hús og fleira. Þá er þar og snotur
kirkja, sjúkrahús ágætt, og yfir-
leitt allt, sem hægt er að hugsa
sér að þurfi. Smíði skipsins stóð
yfir svo árum skifti, og kostað
mun ]iað hafa í okkar peningum
um 160 miljónir króna, en sagt
var, að fjárlög okkar mundu
naumast hrökkva fyrir útgerð
])ess á friðartímum. Er nú varla
furða, þó að menn sé farnir að