Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.08.1930, Blaðsíða 70
356
Gersemar sveitaþorpsins.
[Stefnir
óstinnt. En það eitt varð henni
að orði, að ekki væri að henda
reiður á skrumi ölvaðra manna.
Hún vissi, að faðir hennar mundi
umsvifalaust reka þann velska úr
vistinni, ef hann kæmist að þessu.
Og hún vildi ekki, að honum væri
flutt slíkt marklaust veitingahúss-
þvaður, sem hún mat sjálf að
engu.
Og svo lét hún þetta sem vind
um eyrun þjóta og leiddi hinn
velska hjá sér eins og áður.
En þeir Andrés og Sepper og
Marteinn höfðu fengið horn í
síðu „hins svarta“ — en svo
nefndu þeir Luigi — og gátu ekki
setið á sátts höfði við hann.
Svo kom vínuppskeran. — Það
hafði verið óveður eina nótt og
heljar-mikil björg fallið niður úr
fjallinu á veginn bak við hús
Péturs Melzers. Nú voru húskarl-
ar að ryðja veginn, en stúlkur á
akri og söknuðu hins velska.
Undir kvöld var búið að ryðja
veginn að mestu og lét Melzer
bera húskörlunum vín út þangað,
því að þeir höfðu haft erfiði mik-
ið um daginn. Og vasklega hafði
hinn velski gengið að verkinu.
En meðan þeir eru að drekka,
byrja þeir á ný að erta hann á
önnu Resí.
Þeir spyrja hann, hve marga
kossa hann hafi fengið hjá henni
síðan seinast? Það muni vera auð-
velt að telja þá. Og þeir bæta
því við, að nú hafi þeir orð önnu
Resí sjálfrar fyrir því, að hún
virði hann að engu, sem hvern
annan drykkjugortara.-------Og
marga fleiri ósvinnu láta þeir
fjúka.
Þá er það, að hann sprettur
upp snögglega, þeytir vinglasinu
á veginn, svo að það molast mél-
inu smærra, ranghvolfir augunum,
kreppir hnefana, svo að neglurn-
ar læsast í lófana og þýtur heim
að húsinu.
Húskarlarnir verða hljóðir við
— og hræddir. Þeir vita, að þeg-
ar þessi gáll er á honum, þá er
honum tamt að þrífa til hnífsins.
Þeir líta hver á annan, rísa á fset-
ur allir í senn og fara á eftir
honum.
Nú vill svo til, að stúlkurnar
höfðu lokið dagsverkinu á akrin-
um og voru allar komnar inn,
nema ein.
Anna Resí, sem ætíð var fyrst
og síðust að verki, stóð enn í vín-
hlöðuganginum, með sigðina 1
hendinni og berjapokann bundinn
um mittið.
Allt í einu er hinn velski kom-
inn í hlöðudyrnar — með flaks-
andi hár, eldlegt augnaráð og