Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.08.1930, Blaðsíða 87
KVIKSETTUR.
Eftir Amold Bennett.
[Frh.].
Það var engan veginn fjarri
því, að þrumuveður væri í lofti.
Priam langaði öðru hvoru til þess
að varpa peningum á borðið og
hlaupa á brott. Það var jafnvel
ekki laust við að Alice yrði vör
við þetta, og fór hún að reyna að
koma samtalinu af stað.
„En hvað myndin er lík yður“,
sagði hún, og horfði framan í
hann. En Priam var með eitt af
þeim andlitum sem geta breytzt
oft á dag, og því er ekki hægt að
neita, að það var ekki sérlega
djarfmannlegt þessa stundina. —
Hugarástand hans var ekki óá-
þekkt því, sem vera myndi, ef
hann hefði verið læstur inni í
óbilandi járnskáp. og sæi svo að
skápurinn væri að verða rauð-
gióandi í hornunum.
>,Er myndin lík mér?“ spurði
hann, og gat ekki.gert að því, að
kann var dálítið móðgaður af því,
að vera talinn líkur ljósmynd af
Henry Leek.
„Já‘f, sagði hún með sannfær-
ingarkrafti. „Hún er bara góð.
Eg þekkti yður undireins eftir
henni. Einkum nefið“.
„Eruð þér með hana?“ spurði
hann. Hann var verulega forvit-
inn að sjá, hvernig nefið á hon-
um gæti orðið líkt nefinu á Leek.
Hún opnaði nú handtösku sína
og dró upp úr henní mynd, sem
var alls ekki af Leek, heldur af
Priam Farll! Myndin var ekki
límd á spjald, og var gerð eftir
plötu, sem tekin hafði verið af
þeim Priam Farll og Leek sam-
an í því skyni að vera til hlið-
sjónar við mynd eina, sem Farll
var að vinna að. Og svona var þá
Leek. Hann sendi myndir af hús-
bónda sínum út um hvippinn og
hvappinn, og notaði þær fyrir
beitu á kvennaveiðum sínum.
Alice horfði á myndina himin-
glöð.
„Er hún ekki góð? Er hún ekki
afbragð?"