Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.08.1930, Blaðsíða 96
382
Kviksettur.
[Stefnír
ALLIANCE H.F.
Togaraútgerðarfélag — Reykjavík.
Katipír físk af framleiðöndtím
Ætíð nógar bírgðír af KOLUM, SALTI
og VEIÐARFÆRUM tíl botnvörptiútgerðar
klukknahljóð fyrir eyrum sér. -
Hann hafði alltaf vitað það, að
hann var allgóður málari. Og
verðið, sem hann fékk fyrir mynd-
irnar, sýndi honum, að hann var
vel metinn. En hitt hafði honum
aldrei nokkurntíma til hugar kom-
ið, að hann væri í röð frægustu
manna, sem lifað hefðu á jörðinni.
Honum hafði æfinlega fund-
ist, sem hans frægð væri einhvern-
veginn öðruvísi en öll önnur
frægð, miklu óljósari og óvissari.
En nú sá hann annað. Blöðin
færðu honum heim sanninn um
það mjög svo greinilega, að hann
var einmitt einn af þeim sára-
fáu verulega frægu.
Stórkarla-letur. Fyrirsagnir yf-
ir alla síðuna. Svört rönd utan
um fremstu síðu. Mesti listamað-
ur Englands látinn. Priam Farll
andaðist snögglega. Snöggur end-
ir á mestu frægðarbraut vorra
tíma. Évrópa í sorg. Óbætanlegt
tjón fyrir listina. Allir listvinir
þöggdofa. — I þessum anda voru
fyrirsagnirnar.
Hann gat ekki að sér gert, að
fara að veita blöðunum athyggli-
Þarna lá hann nú, alveg eins og
hver annar maður, og á sama
tíma voru heimsborgirnar fljót-
andi í tárum út af honum. Hann
heyrði fyrir sér grátinn og kvein-
stafina. Allir vinir sannrar listar-