Sagnir - 01.04.1980, Page 3

Sagnir - 01.04.1980, Page 3
Helgi Skúli Kjartartansson Sagnfrædi, af hverju til hvers Sagnfræði sem sjálfstæð rannsóknargrein held ég sé með- al þess menningarlega munaðar sem tíðkast meðal vor, að nokkru leyti af hefð eða vana °g mörgum til nokkurs yndis- auka, en varla til neinna á- þreifanlegra nytsemda eða bóta fyrir fólk eða þjóðfélag. Ég held það sé erfitt að sýna fólki fram á að því sé hollt eða þarflegt að hafa á- huga á sogu, en svo vill til að raargir hafa hann sarat. Sá ahugi á sér marggreindar rætur. Að nokkru leyti er hann arftek- ið raenningargóss eða sprottinn af kynnum við sagnaritun fyrri kynslóðar, en þó er hann ekki siður vaxinn úr samtíðinni sjálfri. Þar eru hvarvetna heimildir og leifar sögunnar sem kalla á skýringar, og hvað eina sem athygli þykir vert í samtíðinni vekur áhuga á því í íortíðinni sem líkt er eða ó- likt eða tengt þróunartengslum; loks er söguáhugi ein leið til að flýja samtímann. Þessi áhugi er sem sagt stað- reynd. Svo vill ennfremur til, að 1 menningu vorri er landlæg virðing fyrir sannindum umfram heilaspuna; enn fremur mjög ákveðnar hugmyndir um það hversu komast megi að sem traustastri þekkingu og tró- verðugustum skilningi á hlut- unum, nefnilega með sérhæfðu rannsóknarstarfi af þv£ tæi sem kallað er vísindalegt eða fræði- legt og lýtur of margvíslegum aðferðar- eða leikreglum til að þær verði ræddar hér. Það er því ekki einungis arftekin upp- ákoma, heldur næsta eðlileg niðurstaða, að söguáhuganum fylgi sagnfræðirannsóknir, svo að söguþekkingunni verði hald- ið í einhverju skikkanlegu sam- ræmi við hugsunarhátt, áhuga- mál.og tiltækar upplýsingar á hverjum tíma; annars yrði hún blöskranleg frá því sjónarmiði sannleiksástar og vísindahyggju sem raenning vor játast undir. En ef söguáhuginn hjaðnaði nú og með honum sagnfræðin? Eða sögurannsóknir legðust nið- ur svo að menn notuðust enn meir en nú við úreltar hug- myndir og illa grundaðar um for- tíðina? Eða hver eru hin raun- verulegu áhrif sagnfræði og sagnaritunar út fyrir sín eigin vébönd; eru þau kannski veruleg og gagnleg og jafnvel hin eina og sanna réttlæting fræðigrein- arinnar? Vissulega er saga og sagn- fræði notuð í margvíslegu skyni* sjálfsagt bæði til gagns og ó- gagns eins og gengur, og er þá umhugsunarvert hvort gagnið um- fram ógagnið réttlæti erfiðið sem til sagnfræðinnar gengur. Það er a.m.k. augljóst af starfi sagnfræðinga að það er unnið eins og þekkingin hafi gildi í sjálfri sér; þeir rétt- læta.sjaldan verkefnaval sitt né rökstyðja niðurstöður raeð

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.