Sagnir


Sagnir - 01.04.1986, Blaðsíða 63

Sagnir - 01.04.1986, Blaðsíða 63
Drepsóttir linna fyrr en um páska 1404 og var hún þá aftur komin í Skálholt. Augljóst er, aö plágan hefur valdið miklum usla þar sem flest fólk var samankomið, svo sem á biskupsstól- unum og í klaustrunum. f annálum segir, að mannfall hafi verið um allt ísland, en eflaust hafa einstakir bæir og jafnvel heilar sveitir sloppið við hana, hvort sem það hefur verið af til- viljun eða beinlínis um sóttvarnir að ræða. Þær virðast þó ekki hafa verið beysnar eftir heitbréfunum að dæma. Þótt bænahald og föstur geti verið ágætt til síns brúks, hefur það hrokkið skammt gegn slíkum vágesti sem pestinni. Hversu mikið var mannfallið? Lengi var haft fyrir satt, að tveir þriðju fslendinga hefðu látist í Plágunni miklu og var þá miðað við frásagnir íslenskra annála af pestinni í Noregi 1349-51. Síðan hafa norskir sagn- fræðingar endurmetið þessa tölu og telja sönnu nær, að einungis hafi þriðjungur til helmingur norsku þjóð- arinnar látist úr pestinni. Að vísu heldur norski sagnfræðingurinn A. Holmsen því fram, að skjalfestartölur úr norskri hagsögu fyrir og eftir pest- ina sýni, að sú áætlun íslenskra ann- álaritara, að tveir þriðju norsku þjóð- arinnar hafi látið lífið, sé varla fjarri sanni.12 íslendingar eiga mjög greinargóðar heimildir um Stórubólu, sem gekk hér 1707-09, nokkrum árum eftir að manntal var tekið 1703. Jón Steffen- sen bar saman skrár um þá, sem lét- ust úr Stórubólu, við manntalið 1703 og samkvæmt því er meðaltal látinna á landinu 26,4% eða rétt rúmlega fjórðungur landsmanna. Út frá þess- um tölum giskar Jón á, að um það bil þriðjungur þjóðarinnar hafi fallið í Plágunni miklu (þ. e. 30-35%).13 Þetta eru óhugnanlegar tölur. Til samanburðar má nefna, að í síðustu drepsótt, sem geisaði á íslandi. Spánsku veikinni 1918, vardánartíðni ekki nema 1-2% og þótti þó öllum nóg. En skyldi öll sagan vera sögð með þessu? Jón Steffensen birtir meðal annars töflur um þá, sem létust úr bólusótt í Álftaneshreppi 1707 og aldursskipt- ingu þeirra. í Ijós kemur, að dánar- tiðni snarminnkar hjá fólki um og eftir fimmtugt. Jón bendir á, að þetta muni stafa af því, að flest fólk í hreppnum hafi fengið bóluna, sem gekk 1655- 58 og hafi því verið ónæmt, en sýni- lega hafi bólusótt, sem var á ferð 1670-72 ekki gengið á Álftanesinu. Samkvæmt þessu má gera ráð fyrir, að flestir um og eftir fertugt hafi verið ónæmir fyrir Stórubólu á þeim svæð- um, sem bólan 1670-72 náði til. Hefði hins vegar verið um pest að ræða, hefðu allir aldursflokkar sýkst jafnt. Ennfremur vantar upplýsingar um, hversu mörgum, sem sýktust, batn- aði, því að alltaf er eitthvað um aftur- bata í bólusótt. Aftur á móti deyja nánast allir, sem sýkjast af lungna- pest. Þegar þetta tvennt, fjöldi ónæmra og afturbatasjúklinga, er tekið með í reikninginn, gætu áætlaðar tölur um mannfall í pest miðað við bólusótt hækkað talsvert og fækkunin jafnvel numið 40-50%. Heimildir um Pláguna síðari 1494- 95 eru enn fáskrúðugri en þær, sem til eru um Pláguna miklu. Þó kemur fram í annálum, að mannfall hafi ver- ið mikið alls staðar á landinu, nema á Vestfjörðum, þangað náði pestin ekki. En Plágan síðari hefur væntan- lega gert álíka mikinn usla og sú fyrri þar sem hún náði til, jafnvel upp undir helmingur landsmanna hafi látist á þeim svæðum. Pest virðist ekki hafa borist til ís- lands oftar en í þessi tvö skipti og samkvæmt framansögðu var það í rauninni tilviljun, að hún skyldi yfirleitt komast yfir íslands ála. Afleiðingar mannfallsins Ekki þarf að efast um, að allt hefur verið í kaldakoli fyrst eftir að plágan var um garð gengin. Heilu sveitirnar hafa verið í eyði og væntanlega hefur búfé hrunið niður líka, þar eð engin leið hefur verið fyrir þá, sem eftir lifðu að hirða nægileg hey til vetrarins nema fyrir nauðsynlegustu skepnu- höld. Þess er að vísu getið í Vatns- fjarðarannál, að veturinn 1403-04 hafi verið svo mildur, að naut hafi gengið úti sjálfala, en það hefur verið skammgóður vermir. Næsti vetur var harður og um hann segir í Nýja annál: „Snjóavetur hinn mikli. Varð svo mikill fjárfellir til hrossa og sauð- fjár fyrir sunnan land, að trautt minnt- ust menn þvílíkan . . .“ ( vísitasíugerðum frá Hólum má sjá, hversu margar jarðir eru í eyði í sjö kirkjusóknum norðanlands 1431, 27 árum eftir að plágunni lauk. Er það sýnt í súluriti hér á eftir. Taliö er, að mannfallið hafi unnist upp á um það bil hálfri öld og er þá miðað við, að þriðjungur landsmanna hafi látist. Sé gert ráð fyrir, að upp undir helmingur þjóðarinnar hafi fallið í valinn, hefur fjölgunin tekið lengri tíma, en sennilega hafa landsmenn verið orðnir jafnmargir og fyrir plág- una fyrri, þegar sú síðari reið yfir. Eignatilfærsla varð mikil, bæði milli einstaklinga vegna erfða og til kirkj- unnar vegna áheita. Auk þess 'gátu kirkjan og efnamenn keypt jarðir vægu verði fyrst eftir pláguna, þegar jarðirnar gáfu lítinn arð vegna fólks- fæðarinnar. Hart var barist um vinnuafl þeirra, sem lifðu af pláguna, bændur vantaði vinnuhjú og jarðareigendur leiguliða. Fólk, sem verið hafði í vinnu- mennsku, hefur átt auðvelt með að hefja búskap, því að landskuldir lækkuðu og eftir pláguna varð alsiða að leigja kvikfénað með jörðunum. Slík kúgildaleiga hafði raunar þekkst áður, en varð nú miklu algengari og tíðkaðist langt fram eftir öldum. En þótt fólki væri gert auðvelt að byrja hefðbundinn búskap, gegndi ekki sama máli um þá, sem hvorki vildu vera leiguliðar né i vinnu- mennsku. Árið 1404 er gerð samþykkt á Al- þingi, sem sýnir, að tekist var á um hverja vinnandi hönd. Þar er hjúum bannað að ráða sig hjá tveimur eða þremur, heldur skuli þau halda sig þar, sem þau hafa fyrst sagst vera ráðin í votta viðurvist, eða þegið kaupgjald fyrirfram, eða verið í þrjár nætur. Allir skyldu vera vistfastir um krossmessu og auk þess er bændum bannað að hýsa eöa taka fénað í hagbeit fyrir óráðið vinnufólk.14 Sam- kvæmt þessu virðast bændur hafa SAGHIR 61
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.