Sagnir - 01.04.1986, Blaðsíða 78
Verkfallið 1955
fékk þá leigt skipið Kveldúlf og sendi
sex verkfallsmenn út í Leningrad.
Voru verkfallsverðir með bréf frá
Hannibal Valdimarssyni sem birt er
hér á síðunni.
Kveldúlfur lagðist að hlið Lenin-
grads og stigu verkfallsverðirnir um
borð. Björn Bjarnason í Iðju hafði orð
fyrir verkfallsmönnum og var vísaö til
skipstjórans sem tók þeim með
mestu Ijúfmennsku. Þegar Björn haföi
skýrt fyrir honum erindið og málavexti
svaraði skipstjórinn því til að hann
ætlaði sér ekki að gerast verkfalls-
brjótur á íslandi. Sendi hann tvo
menn í land til að ganga frá skips-
skjölum vegna brottfarar og bjóst við
að létta akkerum þennan sama dag
og sigla.23
Við ítalska olíuskipið var stöðug
verkfallsvakt frá Reykjavík, en það lá
í Hvalfirði. Skipið vará verkfallssvæði
verkamannafélagsins Harðar í Hval-
firði. Ekki tókst verkfallsmönnum að
ná í stjórn félagsins og félagar í Heröi
höfðu reynt verkfallsbrot. Voru því
menn úr Reykjavík allt verkfallið í
Hvalfirði.24
24. mars boðuðu svo verkalýðsfé-
lögin á Akureyri og Siglufirði verkfall
frá 1. apríl.25
Þegar hér var komið sögu, fór að
bresta samstaða meðal atvinnurek-
enda. í Hafnarfirði var bæjarstjórn-
armeirihlutinn skipaður fulltrúum úr
Alþýðuflokknum og Sósíalistaflokkn-
um.26 Gengu þeir til samninga þann
26. mars við verkalýðsfélögin á
staðnum, fyrir fyrirtækin í eigu bæjar-
ins. Önnur fyrirtæki í bænum gerðust
aðilar að því samkomulagi. Þetta var
illa séð hjá öðrum vinnuveitendum og
svöruðu olíufélögin fyrir þeirra hönd
með því að stöðva bensín- og olíu-
flutninga til Hafnarfjarðar.27 Þannig
var olíufélögunum beitt sem grjótpáli
á verkfallsmenn.
Þessar aðgerðir olíufélaganna
þóttu ærið vafasamar og Einar Ol-
geirsson sagði þegar olíufélögin neit-
uðu að selja Bæjarútgerð Hafnar-
fjarðar olíu: „Þeir neituðu að selja
togurunum olíu, olíu sem ríkisstjórn
íslands kaupir til landsins fyrir fiskinn
sem togararnir framleiða."28
Fjársöfnun
og alþjóðahyggja
Þegar í fyrstu viku verkfallsins var
farið að úthluta úr verkfallssjóði
Dagsbrúnar. Allir félagar í Dagsbrún
áttu rétt til úthlutunar. Mun aðeins lítill
hluti félaganna hafa nýtt sér þann rétt
til að byrja með. Þegar verkfallið dróst
á langinn og skorts tók að gæta á
verkamannaheimilum var gripið til
þess ráðs að koma á laggirnar fjár-
söfnunarnefnd á vegum A.S.Í. í hana
voru kosin Sigríður Hannesdóttir,
Eggert Þorbjarnarson og Óskar Hall-
grímsson. Var sent út ávarp um
söfnunina um landið. Viöbrögð verka-
lýðsfélaganna og einstaklinga voru
undraverð. Söfnuðust hátt í 600 þús-
und krónur, sem var mikið.29
Tryggvi Emilsson lýsir þeim sam-
einingaranda sem ríkti varðandi gjafir
í verkfallssjóðinn:
Tveir kunningjar mínir í Blesugróf
voru að vinna úti á landi þegar
verkfallið skall á og voru ekki
ánægðir með að vera að vinna í
verkfalli síns félags. Allir fengu þeir
mér í hendur tvö hundruð krónur
hver í verkfallssjóðinn og tóku síð-
an við að standa verkfallsvakt.30
Ekki var aðeins leitað aðstoðar
innanlands. A.S.Í. sendi þegar í upp-
hafi skeyti til erlendra verkalýðs-
sambanda, þar sem farið var fram á
stöðvun á íslenskum skipum og flug-
vélum, ef tilraun væri gerð til verk-
fallsbrota. Bárust svarskeyti frá mörg-
um verkalýðssamböndum þar sem
beiðni A.S.Í. var samþykkt. Verka-
lýðssambönd í Noregi, Danmörku og
Svíþjóð sýndu einnig stuðning sinn í
verki meö því að senda rausnarlegar
fjárhæðir til styrktar verkfallsbarátt-
unni.
Hannibal Valdimarsson vill þakka
þennan fjárstuðning Alfred Skar, rit-
stjóra frá Arbeiderens faglige Lands-
organisasjon í Noregi, en hann kom
til landsins í verkfallinu og kynnti sér
gang þess.31
Herra skipstjóri,
Olíuskipinu Leningrad,
Reykjavíkurhöfn.
Alþýðusamband íslands vill hér með tilkynna yður, að hér á landi er nú mjög víðtækt verkfall og að
íslenzku skipin Skeljungur og Litlafell eru verkfallsbrjótar, sem lýstir hafa verið í afgreiðslubann. Þess
vegna teljum vér oss skylt, að senda yður þá aðvörun, að ef áðurnefnd skip verða lestuð enn á ný frá
skipi yðar, eftir þau verkfallsbrot, sem þau hafa nú framið, þá mun Alþýðusamband íslands ekki sjá sér
annaö fært en að tilkynna erlendum alþjóðasamtökum verkamanna, að skip yðar hafi blandað sér í
verkfallið á íslandi, og myndi Alþýðusambandið því biðja um að skip yðar verði sett í bann og neitað
um afgreiðslu í erlendum höfnum. Það eru því vinsamleg tilmæli vortil yðar, að þértilkynnið Olíufélag-
inu, að þér hafið fengið þessa aðvörun og getið ekki tekið á yður eða skip yðar afleiðingar verkfalls-
brota Hins íslenzka olíufélags og munið því ekki leyfa, að olía sé sett úr skipi yðar í íslenzku „tankbát-
ana“ Skeljung og Litlafell.
Virðingarfyllst
f.h. Alþýðusambands íslands.
Hannibal Valdimarsson,22
76 SAQHIR