Sagnir - 01.04.1986, Blaðsíða 81
Verkfallið 1955
Kröfuganga 1. maí. Frá kröfugöngu uerka-
lýðsfélaganna í Reykjauík I. maí 1955.
tryggingamar. Ríkisstjórnin hét því
að leggja frumvarp um þær fram og
fylgja því eftir. Helstu atriði samning-
anna voru 10% hækkun grunnkaups
iðnlærðs verkafólks en 11 % hækkun
grunnkaups ófaglærðs verkafólks.
Orlof lengdist úr 15 í 18 daga eða
hækkaði um 1 % af kaupi. Full vísitala
greiddist á allt kaup. 4% af kaupi
runnu í atvinnuleysissjóð. Hér voru
atvinnuleysistryggingarnar orðnar að
veruleika. Þá var samið um 25%
hækkun kaups iðnnema. Samning-
arnir voru samþykktir í félögunum
næstu daga. Var mikið fjölmenni á
fundi Dagsbrúnar í Gamla bíói, en
hann var haldinn strax aö kvöldi 28.
apríl.
Forystumenn íslensks verkalýðs
voru á einu máli um hvað hæst bæri í
samningunum. Hannibal Valdimars-
son, formaður Alþýðusambands
íslands, sagði: „Það er margra álit, að
atvinnuleysistryggingarnar séu
veigamesti þátturinn í verkfallssigrin-
um, enda hafa atvinnuleysistrygging-
arnar verið baráttumál verkalýðs-
samtakanna frá fyrstu árum þeirra
hér á landi.“42 Eðvarð Sigurðsson,
formaður Dagsbrúnar, sagði í ræðu
sinni 1. maí 1955 á Lækjartorgi: „4%
af kaupi greiðist í atvinnuleysistrygg-
ingarsjóð og er þar með lagður
grundvöllur að framkvæmd eins
mesta hagsmuna- og menningarmáls
alþýðu, sem hún hefur barist fyrir í
áratugi."43 Tryggvi Emilsson, varafor-
maður Dagsbrúnar, segir í ævi-
minningum sínum: „Stærsta kjara-
bótin, sem íslensk alþýða og þjóðin
öll mun búa.að langt fram á komandi
tíma, voru ah'innuleysistryggingamar
sem Dagsbrúnarmenn urðu að berj-
ast fyrir í sex vikna verkfalli og allir
aðrir njóta síðan eins og þær hafi
komið af sjálfu sér.“44
Það er Ijóst að úr þessu verkfalli
komu menn sigurreifir, þó að þeir
hörðustu í röðum verkfallsmanna
væru tilbúnir í áframhaldandi aðgerð-
ir til að knýja fram enn hagstæðari
samninga.
Sigurdór Sigurdórsson blaðamað-
ur tók þátt í þessu verkfalli sem ungl-
ingur, nýkominn á vinnumarkaðinn.
Hann stóð verkfallsvaktir fyrir
Dagsbrún. Hann segir hina eldri og
reyndari í röðum verkfallsmanna hafa
unað vel við niðurstöður verkfallsins.
Þeir höfðu lifað tíma atvinnuleysis,
kreppu og hungurs. Hinir ungu
þekktu ekki þessa hluti af eigin
reynslu. Þeir þekktu aðeins uppgang
í efnahagslífinu, með nýsköpun og
Marshallfé. I þeirra augum voru
samningarnir svik. Þeir börðust á
fundi Dagsbrúnar gegn samningun-
um, því að í upphafi hafði verið rætt
um hærri prósentutölur en þær sem
samkomulagið kvað á um. Atvinnu-
leysistryggingar töldu þeir sér ekki til
tekna.
Stjórnarslit
Það voru ekki aðeins ungu mennirnir
sem voru ósáttir við niðurstöður
verkfallsins. i ævisögu Ólafs Thors
stendur: „Hann var þreyttur eftir
langa verkfallið 1955 og segir: Sættin
hættuleg. Ég gat þó ekki annað en
reynt að miðla málum."45 Ólafur var
ekki ánægður með niðurstöðu samn-
inganna, enda gekk stjórnin ekki heil
til skógar eftir verkfallið 46
Ótti forsætisráðherra, Ólafs Thors,
fyrir verkfallið við að sósíalistar, eða
kommúnistar eins og hann orðaði
það, reyndu að beita sér fyrir því að
stjórnin færi frá og þeir yrðu aftur
geröir gildir í íslenskum stjórnmálum,
var á rökum reistur. Einar Olgeirsson
segir í bókinni ísland í skugga heims-
valdastefnunnar. „Já, því með sex
vikna verkfallinu 1955 sigruðum við
raunverulega ríkisstjórnina. Hún ætl-
aði að brjóta okkur á bak aftur, en það
vorum við, sem sprengdum hana, því
að Framsóknarflokkurinn gafst upp
og sleit samstarfinu við ihaldið."47
í mars 1956 hélt Framsóknarflokk-
urinn flokksþing. Á því þingi var sam-
þykkt að slíta stjórnarsamstarfinu við
Sjálfstæðisflokkinn. í framhaldi af
þeirri samþykkt sendu allir ráðherrar
Framsóknarflokksins Ólafi Thors
forsætisráðherra bréf, stílað 26. mars
1956:
í samræmi við ályktanir 11.
flokksþings framsóknarmanna og
með tilliti til þess, að nú er séð fyrir
endann á afgreiðslu frumvarpanna
um atvinnuleysistryggingar og
vinnumiðlun, sem núverandi
stjórnarflokkar höfðu, í sambandi
við lausn verkfallsins á sl. vori,
sameiginlega heitið að lögfesta, til-
kynnum við yður hér með, herra
forsætisráðherra, að lokið er stuðn-
SAGniR 79