Sagnir


Sagnir - 01.04.1986, Blaðsíða 64

Sagnir - 01.04.1986, Blaðsíða 64
Drepsóttir legið á því lúalaginu að bjóða í vinnu- hjú hverjir frá öðrum og ennfremur hafa ýmsir ekki viljað fastráða sig hjá bændum, heldur vera í lausa- mennsku. Ætla má, að þeir, sem ekki vildu vera vistfastir hjá bændum, hafi frem- ur viljað leita til sjávarsíðunnar og gerast búðsetumenn. Búðseta, þ. e. aðsetur við sjóinn án grasnytja, hafði ekki verið leyfð í þjóðveldisaldar- lögunum (Grágás), nema með sam- þykki hreppsmanna, enda skyldu þeir annast búðsetufólkið, ef afli brygðist og það færi á sveitina. Ákvæði um þetta er aftur á móti ekki í Jónsbók, sem var lögtekin 1281. Skreið varð aðalútflutningsafurð íslendinga um 1340 í stað vaðmáls og trúlega hefur þá þeim fjölgað, sem lögðu fyrir sig fiskveiðar sem búðsetumenn, og er ekki ólíklegt, að alþingissamþykktinni 1404 sé að nokkru leyti beint gegn þeim. Ekki bætti úr skák, að þegar Englendingar tóku að sækja á ís- landsmið í síauknum mæli, bæði til þess að veiða sjálfir og kaupa skreið án milligöngu Hansakaupmanna í Björgvin, sóttust þeir eftir að setja upp verstöðvar í landi og kepptu þannig um vinnuaflið við bændur. Að lokum var búðseta bönnuð með Pínings- dómi 1490, nema því aðeins, að menn ættu vissar eignir. Þorkell Jóhannesson álítur, að sú bylting, sem varð í atvinnuháttum hér, þegar skreiðin tók við af vaðmál- inu í útflutningsversluninni, hafi verið óhjákvæmileg. Hann kennir þó plág- unni um, hversu hraðfara og róttæk sú breyting varð.15 Björn Þorsteins- son gerir þó enn minna úr áhrifum plágunnar á þjóðfélagið: Þótt plágan hafi verið reiðarslag fyrir þá kynslóð sem var á dögum, virðast sárin þó hafa gróið furðu fljótt, og ekki er hægt að rekja nein- ar grundvallarbreytingar á íslensku samfélagi, hvorki menningarlegar né félagslegar, til Svartadauða.16 Björn telur það hafa dregið stærri dilk á eftir sér, að Englendingar fóru að sækja hingað til fiskveiða og versl- unar skömmu eftir að plágan geisaði. Erfitt er að trúa því, að ekki láti eitthvað undan í menningu þjóöfé- lags, þegar svona skyndilegur mann- dauði dynur yfir. Á miðöldum lærði hver kynslóð af annarri verkmennt, hefðir og annað, sem ekki var fest á bók og hætt er við, að eitthvað slíkt hafi farið forgörðum. Auk þess lagðist annálaritun og önnur bókmenntaiðja af eftir pláguna, sennilega vegna þess, að kennimenn og klaustur- bræður hrundu niður. Þeim hefur ver- ið hættara en öðrum, því að þeir bjuggu margir á þéttbýlustu stöðun- um og þurftu auk þess að þjónusta menn fyrir andlátið. Einnig má spyrja, hvort ekki hafi orðið sú félagslega breyting, að bændur stöðvuðu flutning úr sveitum til sjávar vegna fólkseklunnar fyrst eftir pláguna. Hugsanlegt er, að bændur hefðu síður fjandskapast við ásókn að sjávarsíðunni, ef vinnuafl hefði verið nægilegt í landinu, þegar breyttir atvinnuhættir gátu gefið til- efni til breyttrar búsetu. Heimild: Þorkell Jóhannesson, „Plágan mikla 1402-1404.“ Lýdirog landshagir (Rv. 1965), 82-4. 62 SAGMIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.