Nýtt Helgafell - 31.12.1957, Page 18

Nýtt Helgafell - 31.12.1957, Page 18
160 HELGAFELL Ilugnun (maðkurinn þekkir skrautið innar) og erindið: En hvernig heimskir náir með hjúp og moldarflet „unnast bezt eftir dauðann“, eg aldrei skilið get —, sem er eins og storkandi andmæli gegn sjálfum Sigrúnarljóðum. Hann þýðir kvæðisbrot. eftir Feuerbach: „ekkert að ending, eilífur dauði. Sálin mín blíða, berstu hraustlega, sárt þótt sýnist sann- inda ok.“ Og enn er kallað á kjarkinn ein- an í hinni torskildu vísu Að vaði liggur leiðin: „dengjum oss í strenginn!“ Hins vegar kemur víða fram í kvæðum hans, svo sem alkunnugt er, trú á annað líf og einlæg guðrækni. Fyrstu línur 2. erindis má að vísu skilja á sama veg, hvort sem lesið er „hvítur er snjór“ eða hvít- ur snjór“. En svo virðist sem Jónasi hafi við nánari athugun fundizt það lýsa hugs- un sinni betur að segja: „dauðinn er----- hvítur snjór“, en „dauðinn er hreinn (eins) og snjórinn er hvítur“. Þetta er með allt öðrum blæ en hinar ömurlegu lýsingar hans á grafarvistinni. Dauðinn er ekki einungis rotnun í moldarfleti, heldur er ásjóna lið- ins manns föl og hrein, fögur á sinn hátt, eins og hinn „líknandi vetur“, sem lagði snjóhvíta fannblæju yfir líkið í kvæðinu Móðurást, sbr. blœjti síðar í þessu erindi. Hjartavörðurinn! Ur því að Brynjólfur Pétursson tók aðeins upp í bréfi sínu tvö síðari vísuorð þessa erindis sem „naumast“ skiljanleg, hefði verið fróðlegt að vita, hverja merkingu hann hefur lagt í þetta orð. Eðlilegast. er að hugsa sér, að skáldið eigi við eitthvað, sem fyrir augun hefur borið á göngu hans. Nú hafa skógarverðir m. a. það starf að vera á varðbergi gegn veiðiþjófum og sjá til þess, að hirtir og önnur veiðidýr falli ekki, með því að gefa þeim fóður, þegar jarðbönn eru. Það er því réttmætt að kenna þá hjarta (dýra) verði, og það kemur fullvel heim við anda kvæðisins, að skáldinu finnist það í senn félagsskapur og hughreysting að horfa á mann, sem gengur rólega um fannbreiðuna að verki sínu, eins og ekkert sé. En hefur Jónas ekki jafnframt haft aðra og dýpri merkingu orðsins í huga? A. m. k. mátti hann gera ráð fyrir því, að löndum hans heima á Islandi dytti fremur í hug „hjarta" en „hirtir“, þegar þeir læsu kvæðið. Og í sonnettunni A nýársdag (1845), sem að fleira leyti er ekki óskyld Alsnjóa, kveður hann: Eitt á eg samt, og annast vil eg þig, hugur mín sjálfs, í hjarta þoli vörðu. Hér talar hann um að annast hug sinn, sál sína, í lijarta, sem er varið þoli (þolgæði, hreysti). Samkvæmt því mætti kenna karl- mennskuna sem „hjartavörð“: svo æðru- laust mundi eða skyldi þrautgóður mað- ur taka hörkum vetrar og dauða. Full ástæða er til þess að gefa gætur að skyld- leikanum í orðalagi milli þessara tveggja kvæða, sem ort eru með tæps árs millibili, þótt ekkert verði fullyrt, um það, hvort Jónas hefur, meðan hann var að yrkja Alsnjóa, litið á „hjartavörðinn“ sem tví- rætt orð. Ekki verður heldur sagt með vissu, hvort „stendur sig“ er einungis sama sem „stend- ur“, — gamansöm stæling á algengu orða- lagi danskra danskvæða, — eða merkir „að standast raun, láta ekkert á sig bíta“ (sbr. orðatiltækið „að standa sig í báða fætur“). En sennilegra er, að eitthvað í átt við hið síðara hafi vakað fyrir skáldinu. I síðustu ljóðlínu þessa erindis: „býr þar nú undir jörð í heiðri“, minnir skáldið sig á það, að undir hinni breiðu blæju, sem hann áður hefur kallað „eilífan snjó“, sé þrátt fyrir allt jörðin, sem hann síðan ávarpar í þriðja og síðasta erindi kvæðis- ins. Eina vafasama orðið í þessari línu er „heiðri“. Eigum við að trúa því, að það sé einungis valið „vegna rímsins", ekki nema hortittur? Ef nokkurs staðar er að

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.