Nýtt Helgafell - 31.12.1957, Qupperneq 35

Nýtt Helgafell - 31.12.1957, Qupperneq 35
ALKOHÓL 177 í þessu sambctndi er eftirtektarvert að bera saman ásvif fyrir og eftir máltíð, svo og ásvifsmöguleika veikari og sterkari drykkja. Athuganir sýna, að ef 100 gramma af 88 „proof" whisky, sem inniheldur um 44 gr. alkohóls, er neytt á fastandi maga, þá er alkohólmagn blóðsins, mælt í bláæð, hæst eftir h. u. b. 30 mínútur, og það alkohól- magn, sem þá finnst í blóðinu, fer sjaldan eða aldrei yfir 0,084%. Sé sama whisky- magns neytt eftir góða, blandaða máltíð, verður áfengismagn blóðsins um 0,031% eftir 30 mínútur, en hæst eftir h. u. b. IV2 klst., þ. e. a. s. 0,035%. Neyti sami maður skyndilega eins lítra af bjór, 4,5% sterkum, á fastandi maga, fær hann einnig um það bil sama alkohólmagn, 45 gr., en eftir þessa neyzlu verður blóðalkohólmagnið hæst eftir IV2 klst. og þó einungis 0,045% en ef máltíðar er neytt, verður það 0,031 % á sama tíma. Það skal tekið fram, að tölur þessar breytast nokkuð frá einum einstaklingi til annars, en þær tölur, sem hér eru nefndar, tákna hæsta alkohólmagn í blóði, sem líkur eru til að finnist í hverju tilfelli, og þótt lægri tölur kunni að finnast, er hlutfallið þeirra á milli svipað. Hér kemur til greina, að fæða í mag- anum tefur fyrir upptöku alkohólsins og færslu niður í þarma, eins og áður er drepið á, og þótt upptaka alkohóls sé auðveldust í 10—20% vatnsþynningu, þá tefur sú þynn- ing fyrir færslu niður í þarmana. Loks gera ertingaráhrif sterkra drykkja á munn, kok og vélinda þessar tilfærslur hraðari með vakastarfsemi (reflex action). Það er því líf- fræðilega séð tvímælalaust öruggara að neyta léttra drykkja eins og bjórs, ef varast skal snögg áhrif af völdum alkohóls, og neyzla eftir eða með máltíðum í stað neyzlu á fastandi maga stefnir í sömu átt. Þess ber að gæta, að styrkleiki drykkjar breytist þegar eftir neyzlu. í munninum fer nokkur þynning fram, er drykkurinn bland- ast munnvatninu, og síðan í maganum, er hann blandast magasafanum. Eftir upptöku tekur blóðvatnið við og aðrir fljótandi hlutar líkamans. Vatnsmagn blóðsins er um 5% af þyngd líkamans, en í frumunum og um- hverfis þær er vökvamagnið að jafnaði um 65%. Að meðaltali er því vökvaþyngd með- almanns um 70% af líkamsþyngdinni. Mað- ur, sem er um 80 kg. að þyngd, hefir því 56 lítra af vökva til þess að þynna með alko- hólmagn sitt. Eins og búast má við um efnasamband, sem nýtist því nær upp til agna, er alkohól góður orkugjafi, betri en hreinn sykur, en nokkru lélegri en fita. Eigi getur það þó tekið fullkomlega að sér hlutverk sykurs í líkamanum, sem sjá má af því, að sykur- þörf við insúlíngjöf verður ekki uppfyllt með alkohóli eingöngu. Ástæða er jafnvel til þess að æíla, að bruni alkohóls í líkamanum þurfi á hjálp sykurs að halda. Eitt gramm af hreinu alkohóli nýtir um 1459,5 rúmsentímetra af súrefni og myndar 972,9 rúmsentímetra af kolefnistvísýringi, og þessi bruni gefur 7,08 hitaeiningar. Ef alkohól er tekið í hæfilegum skömmtum, getur það auðveldlega uppfyllt allt að 40% af hitaeiningaþörf líkamans. Sú þýðing, er þetta hefir er alkunn frá reynslu óhófsmanna, sem setið geta að drykkju dög- um saman, án þess að neyta annarrar fæðu svo að nokkru nemi. Naumast þarf að taka það fram, að alkohól skortir ýmis nauðsynleg næringarefni svo sem eggjahvítu, steinefni og vítamín, sem líkaminn má eigi án vera til lengdar. Sumar drykkjartegundir inni- halda nokkur þessara efna, en aðrar engin. Efnaskiptahraði líkamans og nýting ork- unnar grundvallast ekki á efnafræðilegri samsetningu fæðunnar á hverjum tíma, heldur. á orkuþörfinni, m. ö. o., vöðva- afköstum og hitaþörf. Alkohól eykur því ekki líkamsorkuna fremur en aðrar fæðuteg- undir, þótt tekinn sé aukaskammtur fram yfir þörf. Bruni þess er heldur ekki aukinn til muna með áreynslu. Sú aukaorka, sem vöðvaáreynsla krefst, kemur að mestu frá sykur- og feitiforða líkamans. Eftirtektar- vert er að sjá í þessu sambandi, hversu há- orkumaður við erfiðisvinnu, er neytir alko- hóls í óhófi, sleppur betur en lágorkumaður, sem vinnur lítið eða létt starf. Maður í rólegri
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.