Nýtt Helgafell - 31.12.1957, Page 41

Nýtt Helgafell - 31.12.1957, Page 41
ALKOHÓL 183 dregnum litlum neyzluhópum, en flest þau samtök, sem skapazt hafa meðal þessara aðila, svo sem alþjóðafélagsskapurinn Alcoholics Anonymus, til hjálpar óhófs- mönnum, eru jöfnum höndum félög van- neytenda. Vert er að geta þess, hversu ofannefndur félagsskapur hefir tekið raun- særri og skilningsgleggri afstöðu til óhófs en mörg önnur félög stofnuð í hliðstæðum tilgangi. Það atriði, sem skilur óhófsmenn frá hóf- neytendum, er tvímælalaust huglægs eðlis og grundvallast á sálarástandi hvers einstak- lings. Hófneytandi kann að nota alkohól til þess að draga úr huglægri þenslu, en hann er eigi að síður reiðubúinn að bera ábyrgð á lífi sínu og athöfnum, neYzlan_er tæki til ábyrgðarhæfni, en ekki flótti frá ábyrgð. í ofneyzlu er neyzlan flótti, hop frá illþolandi ástandi, og í sjúkneyzlu er uppgjöfin alger og neyzlan m. a. vörn gegn hverri viðleitni að innan eða utan til þess að taka ábyrgð á herðar sér á ný. í báðum tilfellum fléttast inní þetta urmull af hliðarorsökum, sem í fljótu bragði virðast oft vera aðalorsakir, og eru tíðast notaðar af sjúklingnum sjálfum og vandamönnum hans til skýringar og réttlæt- ingar á neyzluhættinum. Frá sjónarmiði leik- manns er ótrúlega erfitt að gera greinarmun þess, hversu erfðir, uppeldi, tilfinningaáföll og umhverfi skapa einum einstaklingi sjúk- neyzluþörf, en verður öðrum lyftistöng til afreka, svo að nefndar séu tvær hinar yztu þramir. Þess ber að minnast, að það sem máli skiptir, eru ekki einungis grundvallar- atriðin, sem að ofan eru nefnd, heldur og einnig hin virka (dynamic) samhæfni þeirra, sem skapast hjá hverjum manni smátt og smátt frá fyrsta lífsdegi og til þess tíma, þegar skaphöfn er að fullu mótuð, og skipta fyrstu ár æfinnar þar vitanlega langmestu mcdi. Mjög er eftirtektarvert, hve mörg sameigin- leg atriði má oft finna í sögu og háttum þeirra, er í þennan neytendahóp veljast. Al- gengt er, að þótt bemskuheimili óhófsmcmns- ins hafi borið sæmilega borgaralegan svip hið ytra, þá hafi verið andleg togstreita innan fjölskyldunnar, tilfinningalegt misræmi og sektarafstöður. Ofríki foreldra eða hirðu- leysi eru algeng atriði í sögu hcms, trúar- leg óbilgimi, sterkar andúðir, áráttur í sam- bandi við alkohólneyzlu og öryggisvöntun í tilfinningalegri stöðu barnsins gagnvart foreldri. Sjálfur er sjúklingurinn oft viðræðu- gáfaður, djarfur til grunnra kynna, vinsæll í gleðihópi, þar sem ábyrgðar er lítt krafizt, en þunglyndur og sjálfum sér ónógur í ein- veru. Vanþol líkamlegs og andlegs sársauka er algengt. Áhugi á hinu kyninu er flögranda- kenndur og aðlögunarhæfileiki til hjóna- bands takmarkaður, karlmenn hneigjast til þess að vera ókvæntir og þjóðfélagslega lausir, á rápi frá starfi til starfs. Bæld kyn- villuhneigð er oft til staðar. Giftir óhófsmenn hafa hærri skilnaðartölu en aðrir, og þótt telja megi, að óhófið sé oft lokaorsök skiln- aðarins, er grundvallarorsökina langoftast að finnct í bemskumótun annars eða beggja að- ila. Makaval sjúklingsins er sérstaklega eftirtektarvert, einkum karla. Konu óhófs- manns skortir ósjaldan tilfinningalegt jafn- vægi, er ágeng eða píslarvættishneigð eftir atvikum. Eftirtektarvert er, hversu margar ekkjur og fráskildar konur slíkra manna gift- ast óhófsmönnum á ný. Heildarmynd þess- ara sjúklinga gefur yfirleitt til kynna van- þroskað og illa samhæft tilfinningalíf. Ef tekin eru síðan til greina þau víxláhrif, sem stöðugt eiga sér stað milli hvers einstaklings og umhverfis hans, verður enn ljósara, að um huglægt sjúkdómsform er að ræða, þar sem tilfinningaleg aðlögun einstaklingsins hefir mistekizt, og sjúklegt háttemisform er tekið upp til fróunar huglægri þenslu. Þess ber vitanlega að minnast, að stöku tilfelli óhófs geta verið hegðunarbreytingar í sambandi við geðveiki, hliðstæðar öðru óraunsæu háttalagi. Venjulega er auðvelt að skilja úr þessi tilfelli. Þjóðfélagsleg viðhorf Afstöður þjóðfélaga til alkohólneyzlu eru svo breytilegar frá einum stað og tíma

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.