Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2007, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2007, Page 19
Er hægt að vera of kurteis? Er til dæmis hægt að vera svo kurteis að þeim, sem kurteisin er sýnd, þyki sér misboðið? Kurteisin sé tekin sem gríma og að baki henni búi yfirlæti? Ég las dæmi um slíkt á Vísisbloggi Guðrúnar Helgu Sigurðardótt- ur blaðamanns fyrr í vikunni. Hún skrifar: „Ég heimsótti þjónustufull- trúann í bankanum mínum um dag- inn. Hún lítur út fyrir að vera jafn- gömul mér og hún kallaði mig „vinu“. Að viðskiptum okkar loknum sagði ég henni frá því að ég kynni illa við að vera kölluð „vina“ af ókunnugri manneskju, konu sem væri jafngöm- ul mér. Mér fyndist nánast vera talað niður til mín, ekki síst þar sem sam- talið ætti sér stað í banka.“ Guðrún Helga segir að þjónustu- fulltrúinn hafi tekið athugasemd sinni ágætlega og sagt að þetta væri bandarískt þjónustuviðmót sem starfsfólki bankans væri kennt. En það væru ekki margir sem kvörtuðu og hún ætlaði að halda þessu áfram. Ég er sama sinnis og Guðrún Helga. Mér þykir svona ávarp óþægi- legt frá bláókunnugri manneskju. En vel má vera að það sé í tísku núna hjá verslunar- og afgreiðslu- fólki að sýna þjónustulund með of- urkurteislegum ávarpsorðum. Það er kannski ekki verri tíska en mörg önn- ur. Þjónustufulltrúinn í bankanum er ekki einn um kurteisina. Þegar ég opna tölvupósthólfið mitt hjá Voda- fone birtist á skjánum „Heill þér gm“. Kannski svolítið yfirdrifið? Þegar ekið er að afgreiðslulúgunni hjá McDonalds er maður boðinn „hjartanlega velkominn“. Þetta stakk strax í eyrun, enda er þarna á ferð innilegri kurteisi en venja er á sölu- stöðum skyndibita í borginni. Satt að segja fannst mér ávarpið svolít- ið kjánalegt og byrjaði á því að svara „Guð launi ykkur“ þangað til farþeg- ar í bílnum hnipptu í mig kindarleg- ir á svip. Þeim fannst að ég væri að reyna að trompa afgreiðslufólkið. Annars má segja að það sé ósann- gjarnt að vera að kvarta yfir kurteisi. Það er líklega frekar ástæða til að hafa áhyggjur af ókurteisinni sem mætir manni á mörgum verslunar- stöðum, ekki síst þar sem vörur eru seldar á lágu verði. Þar liggur við að vörunum sé kastað í mann, svo mik- ill er fyrirgangurinn á kassanum. Ætli niðurstaðan sé ekki sú að í þessu efni sem öðrum sé það með- alhófið sem er best; almenn og gam- aldags kurteisi: góðan dag, komdu sæll, takk fyrir, vertu blessaður. Við skulum rækta hana í staðinn fyrir hina lærðu og tilbúnu sem verkar á mann óekta og yfirlætisfull. Tóku lagið SSSólmennirnir Jakob Magnússon og Helgi Björnsson voru meðal tónlistarmanna sem kynntu afmælistónleika Kaupþings sem fram fara á Laugardalsvelli í kvöld. Auk þeirra koma Stuðmenn, Bubbi Morthens, Björgvin Halldórsson, Garðar Thór Cortes, Nylon, Mugison og fleiri fram. DV-MYND: Ásgeirmyndin P lús eð a m ínu s Kristján L. Möller samgöngu- ráðherra fær mínusinn fyrir að kveða ekki skírt upp með að einhver verði látinn axla ábyrgð á óráðsíunni í kringum grímseyjarferjuna. Hann gagnrýndi ráðalagið óspart sem þingmaður og á að sjá sóma sinn í að láta þá ábyrgu axla ábyrgð en sleppa ekki létt. Spurningin „Nei, því miður ekki. Það þarf meira til. Þessar 150 milljónir eiga að hluta til að fara í forvarnarstarf og einnig á landsbyggðinni, þar sem þörfin er brýn líka. Þetta fé fer ekki allt í BUGL. Ég hefði viljað sjá að við myndum fækka um helming á biðlistum, en það er því miður ekki raunin,“ segir Margrét Ómarsdóttir formaður Barnageðs um fjárveitingu heilbrigðisráðuneytisins til barna með hegðunar- og geðraskanir. Duga 150 milljónir? Sandkassinn Ég varð tuttugu og fjögurra ára gamall í vikunni. Ég er kom- inn á þann aldur sem margir jafnaldrar mínir og þá sérstak- lega stelpurnar eru komnir með börn. Orðnir stoltir foreldr- ar sem lifa fyrir krílin sín. Öll eru þau svo með glæsi- lega afkvæma- sýningu á Barnalandi og flest þeirra raunar kom- in með heimasíðu löngu áður en börnin koma í heiminn. Flestar Barnalandssíðurnar eru svo með kynningu sem er eitthvað á þessa leið: „Hæ ég heiti Bumbubúi Pabbason og er tveggja mánaða fóstur, mamma er rosalega stolt af mér.“ Þessi Barnalandstíska tröllríður öllu og sama hvað ég reyni malda í móinn þýðir það ekki neitt. Þar sem Ég á ekkert barn hef- ur mér ég fundist verða dálít- ið út undan upp á síðkastið. Gamlir skólafélagar eru margir komnir með Barnalandssíður, fjölskyldumeðlimir eru alltaf á Barnalandi og vinnufé- lagar mínir líka. Þar sem ég er maður sem vill taka þátt í heitustu æðunum lét ég ekki þá aug- ljósu hindrun að ég á ekkert barn stöðva mig. Nei, ég bjó til Barnalandssíðu fyrir ógetinn frumburð minn. Ég hugsaði með mér, fyrst að fóstur eru komin með pláss á netinu, þá hlyti það að vera rök- rétt næsta skref í þessari þróun að búa til Barnalandssíðu fyrir ógetið barn. Á síðunni hyggst ég halda þeim sið á lofti að blogga af krafti í nafni ófæddra barna minna, en ég bæti um betur. Barnið hefur enn ekki verið getið. á fyrstu tveimur dögunum sem ogetidbarn.barnaland.is var á netinu fékk síðan rúmlega tvö þúsund heimsóknir. Vá, mér leið eins og ég væri Simmi í Kastljósinu. Hvílíkar vin- sældir. Það er greinilegt að ógetin(n) Val- geirsson/dóttir á eftir að verða stjarna. Slíkar vinsældir fyrir getnað geta að- eins verið vísir á eitthvað stærra og meira. Sennilega vinsælasta ógetna barn á landinu um þess- ar mundir. Vel af sér vikið þar. Valgeir Örn er orðinn Barnalands-pabbi. Er hægt að vera of kurteis? DV Umræða FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2007 19 guÐmunDur magnÚSSOn sagnfræðingur skrifar Ætli niðurstaðan sé ekki sú að í þessu efni sem öðrum sé það meðalhófið sem er best; almenn og gamal- dags kurteisi: góðan dag, komdu sæll, takk fyrir, vertu blessaður. DV fyrir 25 árum Ég hef áhuga á því að vita hve- nær Reykjavíkurborg ætli að koma fyrir hraðahindrunum eftir Strand- vegi í Grafarvogi áður en til alvar- legs slyss kemur. Hraði ökutækja eftir veginum er hvílíkur að gang- andi veg- farendur þora varla yfir götuna lengur. Til að fá svör tók ég upp símann og hringdi í skipti- borð borgarinnar. Svör á skipti- borðinu voru þau að vegna sumar- fría væri enginn til svara. Hjá eins stóru firma og Reykjavíkurborg er finnst mér ótrúlegt að borginni sé nánast lokað yfir sumartímann. Loks fékk ég að vita að ég ætti að hafa samband við hverfamið- stöðina í Grafarvogi. Það tók mig þrjá virka daga að fá einhvern þar til að svara símanum. Það sem verra er að þegar loks var svarað, og það gerði yfirmaður stöðvar- innar Jóhann Diego, voru tilsvör- in svo hrokafull og dónaleg að mér blöskraði. Það er nokkuð ljóst að Jóhann telur sig langt yfir íbúa Grafarvogs hafinn og pirrast við að verið sé að ónáða hann í vinnunni. Í mínum huga hefði verið mun betra fyrir Reykjavíkurborg að hafa lokað hjá sér heldur en að láta Jó- hann Diego svara fyrir sín málefni. Grafarvogsbúi óánægður: Betra ef borgin hefði bara lokað LESEndUR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.