Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2007, Síða 22
Hin hliðin DV
HIN HLIÐIN
RagnhilduR
Steinunn
JónSdóttiR
dagSkRáRgeRðaRkona
n Nafn og kyn:
„Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, kona.“
n Atvinna:
„Dagskrárgerðarkona.“
n Hjúskaparstaða:
„Í sambúð með Hauki Inga Guðnasyni.“
n Fjöldi barna:
„Engin.“
n Áttu gæludýr?
„Nei.“
n Ef þú værir bíll, hvaða bíltegund vildirðu vera og hvers
vegna?
„BMW vegna þess að mér finnst þeir bílar ansi liprir.“
n Hefurðu komist í kast við lögin?
„Já, en þó ekkert stórvægilegt.“
n Borðarðu þorramat?
„Nei, ég hef ekki einu sinni smakkað hákarl!“
n Hefurðu farið í megrun?
„Nei.“
n Græturðu yfir minningargreinum um ókunnuga?
„Já, hiklaust.“
n Hefurðu tekið þátt í skipulögðum mótmælum?
„Nei.“
n Lestu blogg?
„Já, ég les ýmis blogg á hverjum degi.“
n Trúirðu á framhaldslíf?
„Já, ég trúi á framhaldslíf í öðru formi.“
n Er líf á öðrum hnöttum?
„Að sjálfsögðu!“
n Kanntu dónabrandara?
„Ég er mjög gleymin á alla brandara en, já, ég kann
nú einhverja.“
n Kanntu þjóðsönginn?
„Ahhh... nei, ekki allan. Þykist samt alltaf kunna hann
á landsleikjum, hreyfi varirnar og syng annað hvert
orð!“
n Kanntu trúarjátninguna?
„Já, ég kann hana en ég er ekki viss um að ég trúi öllu
sem stendur í henni.“
n Spilarðu á hljóðfæri?
„Já, ég var að byrja að læra að spila á gítar. Sit öllum
stundum, með sigg á fingrunum og reyni að komast í
gegnum „stóru söngbókina“.“
n Styðurðu ríkisstjórnina?
„Pass.“
n Hvað er mikilvægast í lífinu?
„Heilsan.“
n Hvaða fræga einstakling myndirðu helst vilja hitta og af
hverju?
„Ég myndi pottþétt vilja hitta Madonnu vegna þess
að ég hef haldið upp á hana síðan ég var 5 ára.“
n Hefurðu eytt peningum í vitleysu - þá hvaða?
„Já, oft og mörgum sinnum, ég hef til dæmis oft
keypt föt sem mér finnst falleg þótt þau passi engan
veginn á mig.“
n Heldurðu með einhverju íþróttafélagi?
„Já, ég held með Fylki.“
n Hefurðu ort ljóð?
„Já.“
n Eru fatafellur að þínu mati listamenn?
„Pass.“
n Eru briddsspilarar að þínu mati íþróttamenn?
„Pass.“
n Af hverju stafar mannkyninu mest hætta?
„Valdafíkn.“
n Á að leyfa önnur vímuefni en áfengi?
„Pass.“
n Stundarðu íþróttir?
„Já, fullt af þeim, syndi, dansa, spila „fótbolta“ og
fleira.“
n Hefurðu látið spá fyrir þér?
„Nei, ég hef reyndar aldrei látið spá fyrir mér, þarf að
fara að hafa samband við Sigríði Klingenberg!“