Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2007, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2007, Blaðsíða 33
FÖSTUDAGUR 23. FebRúAR 2007DV Sport 33 Portsmouth spilar hér á heimavelli og sækir til sigurs. Bolton menn-spila með Heiðar Helguson í framlínunni og gefa langa bolta fram sem hann nikkar áfram á Anelka. Honum verða eitthvað mislagðar fætur og hann klikkar á tveimur dauðafærum. Portsmouth skorar eitt mark í hvorum hálfleik áður en Heiðar minnkar muninn með skallamarki. Birmingham vill sýna áhangendum sínum að liðið eigi heima í þessari deild og að góð frammistaða gegn Chelsea var engin tilviljun. West Ham-menn hafa ekki náð að stilla saman strengi sína þar sem margir nýir leikmenn spila saman. Þetta verður baráttuleikur þar sem heimamenn munu vinna 1- 0 með marki frá Mikel Forsell í fyrri hálfleik. Birmingham stimplar sig inn í deildina með þremur stigum. 1 á lengjunni. Lawrie Sanchez, framkvæmdastjóra Fulham, langar að sýna fram á að hann getur plumað sig í ensku úrvalsdeildinni. Gareth Southgate líka. Hvorugur hefur hins vegar það sem til þarf og leikurinn endar 0-0 eftir slappan leik. Báðir stjórarnir verða hins vegar fullir eldmóðs eftir leik og segjast sáttir við stigið og tala um hæfni hvor annars sem framkvæmdastjóra. Síðan fara þeir í bíó saman og sjá Transformers. X á lengjunni. Ívar Ingimarsson klippir boltann í þverslá og út á þriðju mínútu. Það verður hins vegar það næsta sem Reading-menn komast. Everton nær einum af þessum eitt-núll sigrum sínum eftir horn. Mikel Arteta finnur hausinn á Jolean Lescott sem stangar hann inn af stuttu færi. Reading-menn pressa í lokin með Brynjar Björn Gunnarsson sem sinn besta mann. Allt kemur fyrir ekki. 2 á Lengjunni Tottenham hefur byrjað leiktíðina skelfilega svo ekki sé sterkar að orði kveðið. Framherjarnir rándýru halda áfram að skjóta púðurskotum og Derby vinnur óvæntan en sanngjarnan sigur, 0-1. Martin Jol sér sína sæng útbreidda og segir af sér á sunnudeginum. Glenn Hoddle snýr aftur. 2 á Lengjunni Þá er komið að því, Wigan-Sunderland. Þetta er einn af þessum leikjum sem ákvarða hvort liðið verður í botnbaráttu á tímabilinu. Wigan-menn vilja án vafa sækja til sigurs á heimavelli. Roy Keane er hins vegar á öðru máli og fagnar... ekki þegar hans menn komast yfir í upphafi seinni hálfleiks. Allt bendir til þess að Sunderland-menn vinni sinn fyrsta útisigur. Þá kemur til skjalanna Paul Scharner og jafnar í lokin. 1-1 og X á Newcastle byrjaði tímabilið vel. Martins verður Villa-mönnnum erfiður, skorar eitt og leggur upp annað. Það verður hins vegar ekki nóg gegn sprækum mönnnum Martins O´Neill. Carew setur eitt áður en Jacob Laursen bætir fyrir mistök sín gegn Liverpool og jafnar með skalla. 2-2 og X á Lengjunni. Sven Göran Eriksson kemur með nýjar áherslur inn í lið City sem veitir Manchester United harða keppni í þessum leik. Rooney-lausir United-menn verða óvenju bitlausir fram á við framan af. Carlos Tevéz kemur inn í hálfleik og leggur upp tvö. Elano skorar fyrir Manchester City sem er nálægt því að jafna í lokin. United heldur þetta út og sigrar naumlega. Ferguson fær sér bjór með Roy Keane eftir leik. 2 á Lengjunni. Blackburn er lið sem aldrei er hægt að bóka sigur á móti. Því finna Arsenal-menn fyrir og tapa sínum fyrsta leik á tímabilinu, 2-1. Alexander Hleb verður besti leikmaður Arsenal-liðsins og skorar. Það dugir hins vegar ekki og Roque Santa Cruz skorar eitt mark. Arsene Wenger verður æfur eftir leikinn og tilkynnir að hann hyggist hætta með liðið eftir tímabilið. 1 á Lengjunni Fyrsti stórleikur tímabilsins fer fram á Anfield Road. Hann verður hins vegar lítið fyrir augað. Hart barist en lítið um færi. Steven Gerrard verður næst því að skora í leiknum með þrumuskoti. Chelsea-menn fara sáttir með stig í leik sem endar 0-0. X á Lengjunni. Síðustu fimm viðureignir Bolton 3-2 Portsmouth Portsmouth 0-1 Bolton Portsmouth 1-1 Bolton Bolton 1-0 Portsmouth Portsmouth 1-1 Bolton 1. everton 2 2 0 0 5:2 6 2. Man.City 2 2 0 0 3:0 6 3. Chelsea 2 2 0 0 5:3 6 4. Sunderland 2 1 1 0 3:2 4 5. Newcastle 1 1 0 0 3:1 3 6. Arsenal 1 1 0 0 2:1 3 7. Liverpool 1 1 0 0 2:1 3 8. blackburn 1 1 0 0 2:1 3 9. Wigan 2 1 0 1 2:2 3 10. Fulham 2 1 0 1 3:3 3 11. Portsmouth 2 0 2 0 3:3 2 12. Man.Utd. 2 0 2 0 1:1 2 13. birmingham 2 0 1 1 4:5 1 14. Derby 2 0 1 1 2:3 1 15. Reading 2 0 1 1 1:2 1 16. Aston Villa 1 0 0 1 1:2 0 17. Middlesbro 2 0 0 2 1:3 0 18. West Ham 1 0 0 1 0:2 0 19. bolton 2 0 0 2 2:5 0 20. Tottenham 2 0 0 2 1:4 0 England – úrvalsdeild 1. Coventry 1 1 0 0 4:1 3 2. C.Palace 1 1 0 0 4:1 3 3. Ipswich 1 1 0 0 4:1 3 4. Plymouth 1 1 0 0 3:2 3 5. Watford 1 1 0 0 2:1 3 6. burnley 1 1 0 0 2:1 3 7. Stoke 1 1 0 0 1:0 3 8. blackpool 1 1 0 0 1:0 3 9. Q.P.R. 1 0 1 0 2:2 1 10. Sheff.Utd. 1 0 1 0 2:2 1 11. bristol C. 1 0 1 0 2:2 1 12. Colchester 1 0 1 0 2:2 1 13. Charlton 1 0 1 0 1:1 1 14. Scunthorpe 1 0 1 0 1:1 1 15. Norwich 1 0 1 0 0:0 1 16. Preston 1 0 1 0 0:0 1 17. Hull 1 0 0 1 2:3 0 18. W.b.A. 1 0 0 1 1:2 0 19. Wolves 1 0 0 1 1:2 0 20. Leicester 1 0 0 1 0:1 0 21. Cardiff 1 0 0 1 0:1 0 22. Sheff.Wed. 1 0 0 1 1:4 0 23. Southampton 1 0 0 1 1:4 0 24. barnsley 1 0 0 1 1:4 0 Enska 1. deildin 1 Luton 1 1 0 0 2:1 3 2 Oldham 1 1 0 0 2:1 3 3 Orient 1 1 0 0 2:1 3 4 Crewe 1 1 0 0 2:1 3 5 Huddersfield 1 1 0 0 1:0 3 6 Cheltenham 1 1 0 0 1:0 3 7 Port Vale 1 0 1 0 1:1 1 8 Swindon 1 0 1 0 1:1 1 9 Walsall 1 0 1 0 1:1 1 10 Carlisle 1 0 1 0 1:1 1 11 bristol R. 1 0 1 0 1:1 1 12 Northampton 1 0 1 0 1:1 1 13 Millwall 1 0 1 0 0:0 1 14 Nott.Forest 1 0 1 0 0:0 1 15 bournemouth 1 0 1 0 0:0 1 16 Doncaster 1 0 1 0 0:0 1 17 brighton 1 0 0 1 1:2 0 18 Swansea 1 0 0 1 1:2 0 19 Southend 1 0 0 1 1:2 0 20 Tranmere 1 0 0 1 1:2 0 21 Hartlepool 1 0 0 1 1:2 0 22 Gillingham 1 0 0 1 0:1 0 23 Yeovil 1 0 0 1 0:1 0 24 Leeds 1 1 0 0 2:1 -12 Enska 2. deildin 1 bayern M. 1 1 0 0 3:0 3 2 bielefeld 1 1 0 0 3:1 3 3 Duisburg 1 1 0 0 3:1 3 4 Karlsruhe 1 1 0 0 2:0 3 5 Hamburger 1 1 0 0 1:0 3 6 Frankfurt 1 1 0 0 1:0 3 7 W.bremen 1 0 1 0 2:2 1 8 Stuttgart 1 0 1 0 2:2 1 9 Schalke 1 0 1 0 2:2 1 10 bochum 1 0 1 0 2:2 1 11 Leverkusen 1 0 1 0 0:0 1 12 e.Cottbus 1 0 1 0 0:0 1 13 Hertha b. 1 0 0 1 0:1 0 14 Hannover 1 0 0 1 0:1 0 15 Dortmund 1 0 0 1 1:3 0 16 Wolfsburg 1 0 0 1 1:3 0 17 Nurnberg 1 0 0 1 0:2 0 18 H. Rostock 1 0 0 1 0:3 0 Þýska úrvalsdeildin Heiðar Helguson Baráttuhundur sem gefst ekki upp fyrr en í fulla hnefana. Verður forvitnilegt að sjá baráttu Heiðars og Hermanns Hreiðarssonar því það er alltaf gaman að sjá Íslendinga taka slag í ensku deildinni. Dean Ashton Þarf að sanna sig í byrjun því án Wayne Rooney er enska landsliðið nánast orðið framherjalaust. Hefur sýnt góða takta en spurning hvernig leikformið sé hjá honum. Stuart Downing Eini alvöru vinstri útherji Englands. Með góðar fyrirgjafir og fín skot en hefur vantað stöðugleika í sinn leik. Á góðum degi er hann frábær en getur dottið niður í meðalmennskuna. Marcus Hahnemann Getur hann fylgt eftir stórleiknum sem hann átti gegn Manchester United? Lék klárlega sinn besta leik á ferlinum í síðustu viku þar sem hann varði oft á tíðum meistaralega. Ljóst þó að Reading mun ekki spila með ellefu í vörn eins og þá. Darren Bent Hefur skotið púðurskotum það sem af er tímabili. Flestir vita hvað Bent getur inni á knattspyrnuvellinum en hann þarf að hysja upp um sig buxurnar ætli hann sér í enska landsliðið. Craig Gordon Dýrasti markvörður Bretlandseyja og því mikil pressa á honum að gera engin klaufamistök. Sterkur maður á móti manni og einnig snöggur niður. Hefur átt í erfiðleikum með fyrirgjafir en þó klárlega alhliða markvörður. Obafemi Martins Hefur byrjað tímabilið með stæl. Með Martins í formi eru Newcastle allir vegir færir. Kröftugur framherji, með frábær skot. Villa-menn eru með frekar seina miðverði og því ætti Martins að njóta sín vel í leiknum. Carlos Tevez Einn skemmtilegasti framherjinn í heimsfótboltanum í dag. Loksins þegar hann skildi hvernig enski fótboltinn virkaði var hann óstöðvandi. Var með betri mönnum Manchester United gegn Portsmouth. Alexander Hleb Tæknitröll frá Hvíta-Rússlandi. Frábær á boltanum og naskur að þefa uppi hlaup samherja sinna. Getur skorað falleg mörk en er meira í að leggja þau upp. Góður alhliða leikmaður sem passar vel inn í Arsenal-liðið. Steven Gerrard Einn besti, ef ekki besti miðjumaður í heimi. Frábær alhliða leikmaður sem einhvern veginn getur allt. Skorað, lagt upp, varist og jafnvel verið í marki. Eru alltaf skemmtilegir leikirnir hans gegn Chelsea sem hann neitaði á sínum tíma. Spilar tábrotinn. Síðustu fimm viðureignir West Ham 3-0 Birmingham Birmingham 1-2 West Ham Birmingham 2-2 West Ham West Ham 1-2 Birmingham Birmingham 2-3 West Ham Síðustu fimm viðureignir Middlesbrough 3-1 Fulham Fulham 2-1 Middlesbrough Fulham 1-0 Middlesbrough Middlesbrough 3-2 Fulham Middlesbrough 1-1 Fulham Síðustu fimm viðureignir Everton 1-1 Reading Reading 0-2 Everton Everton 1-0 Reading Everton 3-2 Reading Reading 0-2 Everton Síðustu fimm viðureignir Derby 1-0 Tottenham Tottenham 3-1 Derby Derby 2-1 Tottenham Tottenham 3-1 Derby Tottenham 1-1 Derby Síðustu fimm viðureignir Sunderland 0-1 Wigan Wigan 1-0 Sunderland Wigan 0-1 Sunderland Sunderland 1-1 Wigan Wigan 0-0 Sunderland Síðustu fimm viðureignir Newcastle 3-1 Aston Villa Aston Villa 2-0 Newcastle Aston Villa 1-2 Newcastle Newcastle 1-1 Aston Villa Newcastle 0-3 Aston Villa Síðustu fimm viðureignir Man. City 0-1 Man.Utd Man.Utd 3-1 Man. City Man. City 3-1 Man.Utd Man.Utd 1-1 Man. City Man. City 0-2 Man.Utd Síðustu fimm viðureignir Blackburn 1-0 Arsenal Arsenal 0-0 Blackburn Blackburn 0-2 Arsenal Arsenal 6-2 Blackburn Blackburn 1-0 Arsenal Síðustu fimm viðureignir Liverpool 1-0 Chelsea Chelsea 1-0 Liverpool Liverpool 2-0 Chelsea Chelsea 1-0 Liverpool Liverpool 2-1 Chelsea SÍÐUSTU LEIKIR SPÁ DV STAÐANFYLGSTU MEÐ ÞESSUM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.